Sjáið hvernig Hjördís gerir eldbakaða pítsasnúða

Eldbakaðir pítsasnúðar í nestið.
Eldbakaðir pítsasnúðar í nestið. Samsett mynd

Þessa dag­ana er mest spenn­andi hjá yngri kyn­slóðinni að fá gott nesti í ferðalagið, með á leikj­a­nám­skeiðið eða æf­ing­arn­ar svo fátt sé nefnt. Skól­arn­ir komn­ir í frí og þá er að njóta þess að fá gott nesti með í afþrey­ing­una hver sem hún er. Hjör­dís Dögg Grímars­dótt­ir sem held­ur úti upp­skrift­asíðunni Mömm­ur smellti inn laufléttri upp­skrift að eld­bökuðum pítsa­snúðum á TikT­ok sem ein­falt er að gera og baka í útipít­sa­ofni og krakk­arn­ir eiga eft­ir að elska. Sjáið hvernig Hjör­dís býr þessa dá­sam­legu pítsa­snúða til og leikið list­ina eft­ir. Þetta er líka upp­skrift fyr­ir ömmu og afa að leika eft­ir.

Sjáið hvernig Hjördís gerir eldbakaða pítsasnúða

Vista Prenta

Eld­bakaðir pítsa­snúðar

  • 500 ml volgt vatn
  • 16 g þurr­ger
  • 2 tsk. syk­ur
  • 1 tsk. malt extract
  • 2 msk. olía
  • 2 ½ tsk. salt
  • 1 tsk. óreg­anó
  • 850 g hveiti

Fyll­ing:

  • Pítsasósa að eig­in vali.
  • 1-2 pk. skinka, smátt skor­in
  • 1-2 pk. rif­inn ost­ur að eig­in vali

Aðferð:

 (Sjáið hvernig Hjör­dís ger­ir á Tik Tok).

  1. Byrjið á því að setja þurr­ger, syk­ur og olíu sam­an í skál með volgu vatni.
  2. Hrærið vel sam­an og blandið salti sam­an við.
  3. Bætið hveit­inu sam­an við og hnoðið deigið í 5-10 mín­út­ur.
  4. Látið deigið hef­ast á hlýj­um stað í um það bil klukku­stund eða þar til það hef­ur tvö­faldað sig.
  5. Fletjið deigið út og smyrjið pítsasósu yfir það.
  6. Sáldið smátt skor­inni skinku yfir ásamt rifn­um osti.
  7. Rúllið deigið upp og skerið í hæfi­lega stóra bita.
  8. Ef vill er vert að krydda bit­ana til með óreg­anó kryddi að vild.
  9. Setið snúðana á pít­sa­plötu og bakið í ör­stutta stund í útipít­sa­ofni á hæsta hita, tek­ur mjög stutta stund og vert að fylgj­ast vel með bakstr­in­um.
  10. Full­komn­ir í nestið fyr­ir yngri kyn­slóðina við hvaða til­efni sem er.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert