Ég prófaði þennan sumardrykk um helgina og þetta er svo svalandi og góður drykkur. Allir geta drukkið þennan og hann getur ekki klikkað. Í aðalhlutverki í þessum sumardrykk eru melónur, þrjár tegundir, vatnsmelóna, cantaloup-melóna og galíu-melóna. Uppskriftina fann ég á Instagram-síðu samfélagsmiðlastjörnunnar Macy Blackwell og ákvað að prófa. Hver og einn getur fyllt sinn sumardrykk með þessum dásamlegum melónukúlum sem halda drykknum kældum og ferskum á einstakan hátt.
Sumardrykkur með melónukúlum
- 1 stk. vatnsmelóna
- 1 stk. melóna cantaloup
- 1 stk. melóna galía
- 1 l vatn, sódavatn, Sprite Zero eða hvaða drykkur sem ykkur langar að fylla með melónukúlum.
Til skrauts
Aðferð:
- Notið melónukúluskeið til að búa til kúlur úr hverri melónu.
- Skerið niður afganga af melónunum og setjið í ílát og eigið til að borða þegar hungrið kallar.
- Frystið melónukúlurnar í nokkrar klukkustundir, 3 til 4 klukkustundir.
- Finnið til fallega og stóra könnu og fyllið með melónukúlum.
- Bætið síðan við vatni, sódavatni, Sprite Zero eða þeim drykk sem ykkur langar að njóta með melónukúlunum.
- Hellið í falleg glös og skreytið með límónusneiðum og myntulaufum.