Ommeletta með papriku, osti og sprettum til að byrja daginn

Ommeletta með papriku og bræddum osti borin fram með sprettum, …
Ommeletta með papriku og bræddum osti borin fram með sprettum, salati og nýjum íslenskum jarðarberjum. Ljósmynd/Sjöfn Þórðar

Mitt upp­á­halds til hefja dag­inn á er að fá mér góða omm­elettu sem gleður bæði augu og munn. Það þarf ekki að vera flókið að út­búa omm­elettu og bera hana fram á fal­leg­an hátt. Þetta er ein af mín­um upp­á­halds þar sem paprika, brædd­ur ost­ur og sprett­ur leika aðal­hlut­verkið. Síðan finnst afar gott að fá smá sal­at með ásamt nýj­um ís­lensk­um jarðarberj­um. Svo gott.

Falleg fyrir augu og munn, gleður sálina í upphafi dags.
Fal­leg fyr­ir augu og munn, gleður sál­ina í upp­hafi dags. Ljós­mynd/​Sjöfn Þórðar

Ommeletta með papriku, osti og sprettum til að byrja daginn

Vista Prenta

Omm­eletta með papriku, osti og sprett­um

Fyr­ir einn

  • 3 egg
  • ½ rauð paprika, smátt skor­in
  • Feyki ost­ur eft­ir smekk
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Góð ólífu­olía og smjörklípa til steik­ing­ar
  • Fersk­ar sprett­ur að eig­in vali, til að mynda ra­dísu­sprett­ur og kórí­and­er­sprettu frá VAXA
  • Mozzar­ella­ost­ur
  • Fersk stein­selja
  • Rif­inn par­mesanost­ur ef vill

Til hliðar

  • Sal­at­blanda frá VAXA eft­ir smekk (t.d. sal­at­blöndu með krist­alsal­ati, eik­ar­blaðsal­ati og salanova eða blöndu með krist­alssal­ati og radíusu­sprett­um
  • Íslensk jarðarber eft­ir smekk
  • Bal­sa­miks­íróp eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á að hita góða ólífu­olíu og smjörklípu á meðal stórri pönnu.
  2. Pískið sam­an egg.
  3. Setjið papriku á heita pönn­una og létt steikið.
  4. Hellið eggja­blönd­unni yfir paprik­una á pönn­unni og látið steikj­ast.
  5. Setjið þunn­ar sneiðar af Feyki ofan á eggja­blönd­una á meðan hún er að steikj­ast, bak­ast.
  6. Klemmið sam­an omm­elett­una í mána og sáldrið mozzar­ella osti yfir eft­ir smekk á meðan hún er að steikj­ast. Má setja ör­stutt inn í bak­arofn og láta bak­ast ofan á.
  7. Setjið síðan hálf­mán­ann á disk og klippið niður fersk­ar sprett­ur og ferska stein­selju til að setja ofan á.
  8. Rifið síðan niður smá par­mesanost ef vill, má sleppa.
  9. Setjið sal­at­blöndu til hliðar á disk­inn ásamt fersk­um jarðarberj­um og rönd af bal­sa­miks­írópi.
  10. Berið fal­lega fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert