Rauðmetissalat úr smiðju súrkálsdrottningarinnar

Rauðmetissalatið hennar Dagnýjar Hermannsdóttur passar vel með sunnudagssteikinni.
Rauðmetissalatið hennar Dagnýjar Hermannsdóttur passar vel með sunnudagssteikinni. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór Árnason

Rauðmet­issal­at er súr­kálssal­at vik­unn­ar sem kem­ur úr smiðju súr­káls­drottn­ing­ar­inn­ar Dag­nýju Her­manns­dótt­ur sem veit allt um súr­kál.

„Þetta er mat­ar­mikið og djúsí sal­at sem pass­ar sér­lega vel með sunnu­dags­steik­inni eða grill­matn­um. Það er þægi­legt að nota for­soðnar rauðróf­ur en auðvitað er ekki síðra að sjóða og kæla rauðróf­urn­ar,“ seg­ir Dagný.

Um alla Evr­ópu og Asíu er gjarna borið fram súr­kál eða kimchi með þung­um mat, eins og kjöti. Í lif­andi súr­káli eru nefni­lega ensím sem hjálpa til við melt­ing­una og góðgerl­arn­ir spilla ekki fyr­ir.

Það er um að gera að leika sér með hlut­föll­in í upp­skrift­inni og jafn­vel bæta smátt skornu epli sam­an við ef vill. Sal­atið geym­ist nokkra daga í kæli.

Rauðmetissalatið ber nafn með rentu.
Rauðmet­issal­atið ber nafn með rentu. mbl.is/​Eyþór

Rauðmetissalat úr smiðju súrkálsdrottningarinnar

Vista Prenta

Rauðmet­issal­at

  • 500 g for­soðnar rauðróf­ur
  • 120 g rauðlauk­ur
  • 250 g Rauðmeti (má líka vera Klass­ískt með kúmeni)
  • 1 dós sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera rauðróf­urn­ar í ten­inga og rauðlauk­inn í þunn­ar sneiðar.
  2. Blandið öll­um inni­halds­efn­um vel sam­an í skál og þá er sal­atið er klárt.
  3. Berið fram með því sem hug­ur­inn girn­ist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert