Þessi hrákaka er víst syndsamlega góð eða svo segir Telma Matthíasdóttir hjá Bætaiefnabúllunni.
Hún elskar að útbúa sælkerakökur sem lífga upp á tilveruna. Þetta er ein af hennar uppáhaldshráköku og hana þarf ekki að baka.
Í aðalhlutverki er kaffi og karamella og ef þú elskar það tvennt er þessi dýrð fyrir þig.
Telma deildi með fylgjendum sínum á Instagram-síðunni sinni uppskriftinni og aðferðinni og sýnir trixin við hrákökugerðina.
Kaffikaramellu-hrákaka
Botninn
150 g möndlur
150 g döðlur, mjúkar eða láta liggja í bleyti
2 msk. kakó
1/8 himalaya salt
1/2 tsk. kanill
Aðferð:
Setjið allt í matvinnsluvél og blandið þar til þetta verður einn bolti.
Þjappið deiginu í meðalstórt form og geymið í frysti þar til kremið er tilbúið.
Kaffikaramellu fylling
300 g kasjúhnetur (sem hafa legið í bleyti í 5 klukkustundir)
3 msk. kókosolía
1/4 bolli Sukrin síróp
1/4 tsk. himalaya salt
2 tsk. instant kaffi + 2 msk. heitt vatn blandað saman, sterkt kaffi
Smakka til með Salt caramel Zero drops
Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél eða blandara þar til blandan verður silkimjúk.
Hellið yfir botninn og frystið.
Súkkulaðihjúpur
1 plata Diablo sykurlaust súkkulaði 80%
4 msk. hnetusmjör
1 msk. kókosolía bragðlaus
2 msk. kakó
Aðferð:
Bræðið allt saman yfir vatnsbaði.
Takið kökuna úr fyrsti og hellið kreminu yfir kökuna.
Geymið í frysti.
Berið fram þegar löngunin í góðgæti verður sterk eða þegar gesti ber að garði.