Eggaldin bruschettur úr smiðju Hildar

Hildur Ómars gerði þessar skemmtilegu og frumlegu bruschettur úr eggaldin …
Hildur Ómars gerði þessar skemmtilegu og frumlegu bruschettur úr eggaldin á dögunum. Samsett mynd

Hild­ur Ómars­dótt­ir mat­ar­blogg­ari með meiru er sniðugri en flest­ir þegar kem­ur að því að koma með skemmti­leg­ar hug­mynd­ir af holl­um og góðum rétt­um. Á dög­un­um gerði Hild­ur þess­ar glút­en­lausu eggald­in bruschett­ur sem henta vel fyr­ir þá sem vilja minnka eða sneiða fram­hjá brauði sem ótrú­lega skemmti­leg hug­mynd.

„Við hug­mynda­vinnu við þessa upp­skrift sá ég þær fyr­ir mér sem full­kom­inn for­rétt á sól­rík­um degi í góðum fé­lags­skap. Ég viður­kenni að ég er far­in að þrá svo­leiðis daga. Rétt­inn er auðveld­lega hægt að taka með sér í boð þar sem hægt er að elda eggald­inið og út­búa bruschetta mixið deg­in­um áður. Rétt­inn má borða heit­an og kald­an,“ seg­ir Hild­ur.

Girnilegar bruschettur og samsetningin er skemmtileg.
Girni­leg­ar bruschett­ur og sam­setn­ing­in er skemmti­leg. Ljós­mynd/​Hild­ur Ómars

Eggaldin bruschettur úr smiðju Hildar

Vista Prenta

Eggald­in bruschett­ur

Fyr­ir 2-4

Eggald­inið

  • 1 eggald­in
  • Ólífu­olíu
  • Org­anic liquid basil

Bruschettamix

  1. 3 tóm­at­ar
  2. 1-2 hvít­lauksrif
  3. 2 tsk. bal­sa­mike­dik
  4. 1 tsk. kaldpressuð ólífu­olía
  5. Lítið hand­fylli basil og auka til að toppa með
  6. Salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að skola og skera eggald­inið í um það bil 1 cm sneiðar.
  2. Dreifð úr sneiðunum á bretti, gerið göt í hverja sneið með gaffli og stráið um það bil hnífsoddi af salti á hverja sneið.
  3. Leyfið eggald­in­inu að svitna í að minnsta kosti 10 mín­út­ur.
  4. Þerrið eggald­inið vel með eld­hús­bréfi og komið eggald­insneiðunum fyr­ir á bök­un­ar­papp­ír.
  5. Dreifið um það bil einni te­skeið af org­anic liquid basil á hverja sneið og 1 te­skeið af ólífu­olíu.
  6. Setjið inn í ofn og bakið í 15 mín­út­ur á 200°C hita.
  7. Útbúið  bruschettamixið með því að skera tóm­at­ana og basilík­una smátt, rífa hvít­lauk­inn og blanda sam­an við rest­ina af hrá­efn­un­um.
  8. Þegar eggald­inið er klárt, toppið þá hverja eggald­insneið með bruschettamixi og auka basilíku.
  9. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert