Það er að koma helgi og þá er lag að gera vel við sig í mat og drykk. Nú er það sætt grillbrauð sem þú átt eftir að missa þig yfir, cinnabon grillbrauð með ostakremi sem bráðnar í munni. Þetta er snilldar sætabrauð sem þú átt vel skilið að fá um helgina, syndsamlega gott og svo ljúft að njóta. Uppskriftin kemur úr smiðju Árna Þorvarðarsonar bakara og fagstjóra við Hótel- og matvælaskólann í Kópavogi sem er óstöðvandi í pítsa- og brauðbakstrinum enda ástríða hans að gleðja aðra með nýbökuðum kræsingum.
Cinnabon er vinsæl tegund af sætu brauði sem er þekkt fyrir sitt heillandi bragð og einstaklega bragðmikið yfirborð. Cinnabon er upphaflega frá Bandaríkjunum og hefur orðið mjög vinsælt um allan heim.
Cinnabon grillbrauð fyrir nautnaseggi.
Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Cinnabon grillbrauð fyrir nautnaseggi
Brauðdeigið
- 592 g pítsahveiti
- 7 g þurrger
- 12 g salt
- 47 g olía
- 332 g vatn
Ofan á brauðið
- Kanilsykur eftir smekk
- Ostakrem eftir smekk, sjá uppskrift fyrir neðan
Aðferð:
- Byrjið á að vigta allt hráefnið saman í hrærivélaskál.
- Notið krók og hrærið í 4 mínútur á 30% hraða og 4 mínútur á 60% hraða.
- Setjið olíu í form og skiptið deiginu í formin. Helst eru notuð álform sem hægt er að setja á grillið og hita upp.
- Leyfið deiginu að standa við stofuhita í 60 mínútur vel húðað af olíu.
- Þrýstið út með puttunum þar til deigið nær út í allt formið.
- Stundum þarf að endurtaka hvíldartímann.
- Setjið inn í kæli í 12 tíma.
- Stráið kanilsykri yfir brauðið fyrir bakstur.
- Leyfið deiginu að stækkað aðeins áður en það er bakað.
- Bakið við 210°C hita í 12 mínútur eða í útipítsaaofni á kaldasta svæðinu í ofninum, gott er að setja álpappír yfir svo brauðið brenni ekki að ofan.
- Þegar brauðið hefur kólnað er það skorið niður í flottar stærðir og ostakremi dreift yfir.
- Gott er að hita aftur upp á grillinu með mat.
Ostakrem
- 62 g rjómaostur
- 125 g smjör, brætt
- 1 tsk. vanilludropar
- 312 g flórsykur
Aðferð:
- Vigtið allt nema smjörið saman í hrærivélaskál með spaða.
- Bræðið smjörið í potti.
- Blandið svo saman við rjómaostinn og flórsykurinn.
- Hrærið þar til kremið verður létt og ljóst.
- Berið ostakremið ofan á brauðið.