Dýrðlegar perlur fyrir lautarferðir í París

Það er dýrðlegt að fara í lautarferð á grasblettinn í …
Það er dýrðlegt að fara í lautarferð á grasblettinn í nánd við Eiffelturninn þar sem hægt er að virða þennan stór merkilega turn fyrir sér. Staðurinn nefnist Champ de Mars og er einn vinsælasti lautarbletturinn í París. Samsett mynd/Sjöfn

Eitt af því sem er mjög áhuga­vert og skemmti­legt að gera í Par­ís­ar­borg er að reyna að borða á sömu veit­inga­hús­um og heima­menn, forðast túrista­gildr­ur og t.a.m. fara í laut­ar­ferð eins marg­ir Par­ís­ar­bú­ar gera þegar sól­in skín skært á lofti. Það þarf ekk­ert að vera flókið að fara í laut­ar­ferð, held­ur láta bara verða að því og upp­lifa sig sem heima­mann.

Hug­mynd­ir af veislu­föng­um

Stökkt franskt bagu­ettebrauð er al­gjör­lega ómiss­andi, ost­ar, skink­ur og ýmis kon­ar álegg, eitt­hvað sætt eins og ekta fransk­ar makkarón­ur jafn­vel og góða franska vín­flösku eða það sem þú kýst að drekka. Jafn­framt eru frönsk bakarí ekki af verri end­an­um og selja bakk­elsi sem freist­ar, fersk­ar sam­lok­ur og litla eft­ir­rétti. 

Hvert á að fara í laut­ar­ferð í Par­ís?

Það eru ótal opin svæði í Par­ís sem hægt er að setj­ast niður að snæðingi og njóta þess að upp­lifa borg­ar­menn­ing­una und­ir ber­um himni í laut­ar­ferð eða bara til­efni til að fá sér fransk­an for­drykk fyr­ir kvöldið. Í ein­hverj­um görðum og opn­um svæðum þarf að virða regl­ur þar sem ekki er heim­ilt að sitja á gras­flöt­um en þá er það yf­ir­leitt merkt, en þá eru bekk­ir, hreyf­an­leg­ir stól­ar og stund­um borð til staðar. Sum staðar geta líka verið staðir þar sem ekki er ætl­ast til að hafa áfenga drykki um hönd .

Hér eru nokk­ur svæði sem hægt er að njóta Par­ís­ar­borg­ar á ein­stak­an hátt.

Champ de Mars

Í nánd við Eif­felt­urn­inn er risa grasblett­ur þar sem hægt er að virða þenn­an stór merki­lega turn fyr­ir sér og nefn­ist Champ de Mars og er einn vin­sæl­asti laut­ar­blett­ur­inn í Par­ís. Grasblett­ur­inn er þó stór og nægt pláss fyr­ir alla.

Hvernig langar ekki að fara í lautarferð með þetta glæsilega …
Hvernig lang­ar ekki að fara í laut­ar­ferð með þetta glæsi­lega út­sýni fyr­ir fram­an sig? Sam­sett mynd

Parc de la Turlure

Það eru marg­ir fal­leg­ir staðir fyr­ir laut­ar­ferðir í Mont­martre eða upp á lista­manna­hæðina eins og staður­inn er stund­um nefnd­ur en þeir geta orðið þétt setn­ir þegar veðrið leik­ur við Par­ís­ar­búa. Parc de la Turlure er einn af upp­á­halds görðum heima­manna í Mont­martre. Garður­inn býður upp á stór­kost­legt út­sýni yfir Sacré Coe­ur kirkj­una.

Parc de la Turlure í Montmartre á listamannshæðinni.
Parc de la Turlure í Mont­martre á lista­manns­hæðinni. Sam­sett mynd

Jardin du Lux­em­bourg

Lúx­em­borg­arg­arður­inn er sögu­leg­ur al­menn­ings­garður í hjarta Par­ís­ar. Í garðinn mæta marg­ir íbú­ar Par­ís­ar­borg­ar til að eyða tím­an­um, sóla sig eða hitta vini sína í af­slappaðri laut­ar­ferð. Garður­inn þykir með fal­legri al­menn­ings­görðum í Evr­ópu. Í Lúx­em­borg­arg­arðinum finn­ur þú höll, gos­brunna, tjörn, stytt­ur, bekki og fær­an­lega stóla.

Jardin du Luxembourg garðurinn hinn frægi.
Jardin du Lux­em­bourg garður­inn hinn frægi. Ljós­mynd/​Sjöfn

Place des Vos­ges

Place des Vos­ges er staðsett í hjarta Mara­is hverf­is­ins eða Mýr­inni eins og hverfið er stund­um nefnt. Elsta skipu­lagða torg Par­ís­ar, umliggj­andi gróðri og rauðum múr­steins­hús­um. Glæsi­legt torg um­kringt af fal­legri bygg­ing­ar­list. Í ná­grenn­inu eru jafn­framt lista­söfn sem liggja að torg­inu.

Place des Vosges er staðsett í hjarta Marais hverfisins eða …
Place des Vos­ges er staðsett í hjarta Mara­is hverf­is­ins eða Mýr­inni eins og hverfið er stund­um nefnt. Sam­sett mynd

Áin Signa

Áin Signa er ein af þekkt­ustu tákn­mynd­um Par­ís­ar­borg­ar og renn­ur áin í gegn­um miðborg­ina. Signa er full af lífi dag sem nótt, hún hýs­ir fljót­andi veit­ingastaði, fulla báta af ferðamönn­um sem vilja sigla um ánna og njóta franskr­ar bygg­ingalist­ar og um helg­ar og á kvöld­in verða ár­bakk­ar Signu þétt setn­ir af lífi, tónlist og laut­ar­ferðum í góðu veðri. Það eru nokkr­ir staðir við ánna sem eru vin­sæl­ir til baða sig í sól­inni ásamt guðaveig­um og bakk­elsi.

Það eru nokkrir staðir við ánna Signu sem eru vinsælir …
Það eru nokkr­ir staðir við ánna Signu sem eru vin­sæl­ir til baða sig í sól­inni ásamt að fá sér á guðaveig­um og bakk­elsi. Sam­sett mynd

Place du Troca­déro

Place du Troca­déro er opið svæði og inni­held­ur söfn, skúlp­túra, garða og gos­brunna. Á þessu svæði er eitt besta út­sýni borg­ar­inn­ar yfir Eif­felt­urn­inn. Garðarn­ir eru vin­sæl­ir staðir á sumr­in og bjóða upp á full­komið út­sýni til að upp­lifa hina mögnuðu ljósa­sýn­ingu Eif­felt­urns­ins á kvöld­in.

Garðarnir hér eru vinsælir staðir á sumrin og bjóða upp …
Garðarn­ir hér eru vin­sæl­ir staðir á sumr­in og bjóða upp á full­komið út­sýni til að upp­lifa hina mögnuðu ljósa­sýn­ingu Eif­felt­urns­ins á kvöld­in. Sam­sett mynd

Île de la Cité

Áin Signa klofn­ar í tvennt á þess­um stað og mynd­ar tvær eyj­ar sem tengd­ar eru sam­an með litlu Saint Lou­is brúnni. Ein þeirra, Île de la Cité, er vin­sæll staður fyr­ir laut­ar­ferðir, sér­stak­lega austurodd­ur­inn. Þarna get­ur þú auðveld­lega fylgst með bátaum­ferðinni um Signu á sól­rík­um dög­um.  

Áin Signa klofnar í tvennt á þessum stað og myndar …
Áin Signa klofn­ar í tvennt á þess­um stað og mynd­ar tvær eyj­ar sem tengd­ar eru sam­an með litlu Saint Lou­is brúnni. Við bakk­ana safn­ast sam­an fólk og nýt­ur góðra veiga í fal­legu veðri. Ljós­mynd/​Sjöfn

Arè­nes de Lutèce

Róm­versk arf­leifð, Arè­nes de Lutèce er tákn­mynd og minn­is­varði róm­verska leik­húss­ins í borg­inni. Þess­ar leif­ar af róm­versku Par­ís er staðsett­ar í Lat­ínu­hverf­inu og er af­slapp­andi staður til að fara í laut­ar­ferð í Par­ís, langt frá ys og þys hverf­is­ins.

Hér er afslappandi staður til að fara í lautarferð í …
Hér er af­slapp­andi staður til að fara í laut­ar­ferð í Par­ís, langt frá ys og þys hverf­is­ins. Sam­sett mynd

Jardin du Pala­is Royal

Friðsæll og fal­leg­ur garður í nánd við Louvre-safnið og staðsett­ur mitt á milli op­in­bera bygg­inga. Jardin du Pala­is Royal er ynd­is­leg­ur griðastaður til að slaka á og prýdd­ur 17. ald­ar arki­tekt­úr. Þessi garður er full­kom­in til að gæða sér á sam­loku, bagu­ettebrauði eða croiss­ant ásamt ekta frönsku kaffi og kom­ast aðeins frá fjöl­förn­um stétt­um og stræt­um Par­ís­ar­borg­ar. Fal­leg­ur trjá­gróður prýðir garðinn ásamt bekkj­um, gos­brunni.

Þessi garður er fullkomin til að gæða sér á samloku, …
Þessi garður er full­kom­in til að gæða sér á sam­loku, bagu­ettebrauði eða croiss­ant ásamt ekta frönsku kaffi. Ljós­mynd/​Sjöfn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert