Hildur býður upp á grænt salat með ristuðum hnetum og sesamdressingu

Hildur Ómarsdóttir býður upp á súrkálssalat dagsins sem er bæði …
Hildur Ómarsdóttir býður upp á súrkálssalat dagsins sem er bæði matarmikið og fallegt að sjá. Samsett mynd

Miðviku­dag­ar eru súr­kálssal­at­dag­ar og nú er komið að næsta sal­ati sem inni­held­ur súr­kál. Hér erum við kom­in með mat­ar­mikið og bragðgott sal­at úr smiðju Hild­ar Ómars­dótt­ur mat­ar­blogg­ara með meiru sem er þekkt fyr­ir að gera lit­rík og góð salöt sem gleðja bæði augu og bragðlauka. Hildi finnst mikið atriði að sal­at inni­haldi hrá­efni með ólíka áferð, sé saðsamt og að jafn­vægi sé á súru, söltu og fersku bragði og í þessu sal­ati er hún með klass­ískt súr­kál með kúmeni. Súr­kálið góða sem súr­káls­drottn­ing­in okk­ar á heiður­inn af. Hún er líka meðvituð um það að við borðum líka með aug­un­um og það skemm­ir ekki þegar sal­atið er fal­legt fyr­ir augað. Loks seg­ir Hild­ur að bragðmik­il dress­ing­in setji punkt­inn yfir i-ið.

Girnilegt salatið hennar Hildar.
Girni­legt sal­atið henn­ar Hild­ar. Ljós­mynd/​Hild­ur Ómars­dótt­ir

Hildur býður upp á grænt salat með ristuðum hnetum og sesamdressingu

Vista Prenta

Sal­atið henn­ar Hild­ar

Sal­atið

  • ¼ rauðlauk­ur
  • 1 lít­il rauðrófa
  • 2 líf­ræn epli
  • 50 g hesli­hnet­ur
  • 100 g pek­an­hnet­ur
  • 1 gúrka
  • 2 avóka­dó
  • u.þ.b. 125 g sal­at­blanda frá VAXA 
  • Klass­ískt súr­kál með kúmeni

Dress­ing

  1. ½ dl ses­a­molia
  2. ½ dl ólífu­olía
  3. ¼ dl sojasósa glút­en­laus
  4. 2 msk. safi úr líf­rænni sítr­ónu
  5. Vænn engi­fer­biti, eins og þykk­ur þum­all
  6. ½ kúlu­hvít­lauk­ur (geira­laus hvít­lauk­ur)

Aðferð:

  1. Ristið hnet­urn­ar á lág­um hita á þurri pönnu í um það bil 1-2 mín­út­ur.
  2. Skerið avóka­dó, epli, gúrku og rauðlauk í þunn­ar sneiðar.
  3. Skrælið rauðróf­una og rífið niður með rif­járni (það er einnig hægt að nota græn­met­isydd­ara eða svipaða græju til að rífa niður rauðróf­una og gúrk­una í spa­gettíslöng­ur).
  4. Útbúið dress­ing­una með því að mixa öllu sam­an með t.d. töfra­sprota eða litl­um bland­ara.
  5. Berið fram á sal­at­beði. Þetta er toppað með avóka­dó, gúrku, eplaskíf­um, rauðlauki, rif­inni rauðrófu, ristuðum hnet­um, ses­am­dress­ingu og súr­káli.
  6. Njótið með ykk­ar besta fólki.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert