Krónan í Grafarholti opnuð eftir framkvæmdir

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, er alsæl með endurbæturnar í Krónunni …
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, er alsæl með endurbæturnar í Krónunni í Grafarholti og segir þau hlakka til að taka á móti viðskiptavinum í uppfærðri og fallegri verslun á nýjan leik. mbl.is/Sigurður Bogi

Ný og glæsileg verslun Krónunnar við Þjóðhildarstíg í Grafarholti verður opnuð klukkan 9 þann 11. júlí eftir tímabundna lokun síðastliðnar vikur vegna endurnýjunar til að mæta enn betur væntingum viðskiptavina ásamt því að horfa til umhverfisvænna lausna og innleiðingar á vistvænu kælikerfi. 

Betra skipulag og flæði

„Við erum gífurlega spennt að geta tekið á móti viðskiptavinum okkar á nýjan leik hér í Grafarholtinu eftir miklar breytingar. Við höfum unnið hörðum höndum að því síðastliðnar vikur að uppfæra verslunina en við höfum meðal annars skipt um öll gólfefni og hillukerfi og innleitt umhverfisvæn kæli- og frystitæki. Allar merkingar eru nýjar ásamt því að betra skipulag inni í verslun býður upp á þægilegra flæði fyrir viðskiptavini okkar sem koma víðs vegar að úr Grafarholti og nágrenni,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Í þessu sambandi nefnir Guðrún einnig að það fyrsta sem taki við viðskiptavinum sé glæsileg og stærri ávaxta- og grænmetisdeild þar sem ferskleikinn er í fyrirrúmi. Einnig hefur brauðdeildin fengið meira og betra rými ásamt því að boðið verður upp á meira úrval af fersku kjöti, fiski og tilbúnum réttum til að mæta betur þörfum og ákalli viðskiptavina.

Jákvæð upplifun viðskiptavina í fyrirrúmi

„Við lögðum í hönnunarferlinu mikla áherslu á gott skipulag, yfirsýn og rýmistilfinningu. Við höfum horft til þessara þátta í öðrum verslunum sem hafa verið teknar í gegn á síðastliðnum árum við góðar undirtektir viðskiptavina okkar. Við viljum að verslunin taki vel á móti viðskiptavinum og að fólk njóti þess að versla hjá okkur en þar eru bæði stór atriði sem smá sem þarf að huga að til að mæta ólíkum þörfum viðskiptavina. Við eigum frábæran hóp viðskiptavina í Grafarholti og nágrenni og við hlökkum til að taka á móti þeim á nýjan leik í uppfærðri og fallegri verslun,“ segir Guðrún.

Tuttugu ára saga í Grafarholti

Rekstur matvörubúðar í verslunarrýminu við Þjóðhildarstíg 2 í Grafarholti á sér 20 ára sögu eða frá því að verslun Nóatúns tók þar til starfa árið 2004. Tíu árum síðar opnaði Krónan dyr sínar í þessu sama verslunarrými sem hefur nú verið endurnýjað frá grunni í takti við sambærilegar breytingar sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum í öðrum verslunum Krónunnar.

Ólafur Rúnar Þórhallsson, framkvæmdastjóri hjá Krónunni, ásamt Breka Arndal, verslunarstjóra …
Ólafur Rúnar Þórhallsson, framkvæmdastjóri hjá Krónunni, ásamt Breka Arndal, verslunarstjóra í Grafarholti. mbl.is/Sigurður Bogi

Endurnýjun í takt við breytingar á matvörumarkaði

„Við erum með 26 verslanir víðs vegar um landið og horfum til þess að endurnýja eldri verslanir á komandi árum. Það er ákveðin endurnýjunarþörf til staðar hvað varðar búnað og fleira. Endurnýjun verslana er einnig mikilvæg til að mæta kröfum nútímans og fjölbreyttum væntingum viðskiptavina. Við höfum sett okkur háleit markmið á okkar sjálfbærnivegferð ásamt því að vera leiðandi í stafrænum lausnum og tekur endurnýjun mið af því ásamt því að horfa ávallt til jákvæðrar heildarupplifunar viðskiptavina. Þar er að mörgu að huga til að mæta ólíkum þörfum en það er verðugt og jafnframt einstaklega gefandi verkefni sem við í Krónunni brennum fyrir,“ segir Guðrún.

Í tilefni opnunarinnar mun Krónan vera með tilboð á völdum vörum dagana 11. til 14. júlí í verslun Krónunnar á Grafarholti. Auk þess munu viðskiptavinir sem notast við Skannað og skundað í appi Krónunnar fá 5 prósenta afslátt af öllum vörum alla opnunarhelgina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert