Magdalenur í tilefni þjóðhátíðardags Frakka

Ljúffengar og fallegar Magdalenur eða Madeleines til að hafa með …
Ljúffengar og fallegar Magdalenur eða Madeleines til að hafa með kaffinu á þjóðhátíðardegi Frakka í dag, Bastilludeginum. Ljósmynd/Unsplash

Í dag, 14. júlí er þjóðhátíðardag­ur Frakka, Bastillu­dag­ur­inn frægi. Til að fagna þjóðhátíðar­deg­in­um með Frökk­um er upp­lagt að baka ekta fransk­ar Magda­len­ur eða Madeleines sem og þær heita á frönsku. Þær eru ein­fald­ar og góðar, passa vel, til að mynda, með kampa­víni og líka með rjúk­andi heitu kaffi. Vert er að byrja strax að baka ef þið viljið bjóða upp á þess­ar með sunnu­dagskaff­inu eða í eft­ir­rétt með kvöld­verðinum, því deigið þarf að kæla í að minnsta kosti tvær klukku­stund­ir fyr­ir bakst­ur. Síðan þarf auðvitað að eiga rétta formið fyr­ir þess­ar kök­ur eða Magda­lenu­form en þess­ar kök­ur eru litl­ar skelja­laga kök­ur og bakaðar í frönsk­um skelja­laga form­um.

Magdalenur í tilefni þjóðhátíðardags Frakka

Vista Prenta

Magda­len­ur eða Madeleines eins og þær heita á frönsku

  • 2 stór egg
  • 0,75 dl syk­ur
  • 1,25 dl hveiti
  • Hnífsodd­ur að salti
  • ¾ tsk. lyfti­duft
  • 6 ½ msk. smjör, við stofu­hita
  • 1 tsk. hun­ang
  • ½ tsk. rif­inn sítr­ónu­börk­ur af líf­rænni sítr­ónu
  • ½ tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að brjóta egg­in og setja sam­an í stóra skál.
  2. Bætið síðan við sykr­in­um og hrærið sam­an við.
  3. Takið aðra skál og hrærið sam­an hveiti, salt og lyfti­duft.
  4. Blandið sam­an þur­refn­un­um við egg­in þar til deigið verður jafnt.
  5. Hrærið loks hun­ang­inu sam­an við brædd smjörið.
  6. Hrærið hun­angs­blönd­unni ásamt vanillu­drop­un­um og sítr­ónu­berk­in­um sam­an við deigið.
  7. Kælið deigið í tvær klukku­stund­ir eða lengst yfir nótt.
  8. Hitið ofn­inn í 175°C.
  9. Takið til Magda­lenu smá­köku­formið og spreyið með olíu.
  10. Hellið deig­inu í formin að ¾ hluta.
  11. Setjið inn í ofn og bakið í um það bil 6 mín­út­ur.
  12. Leyfið kök­un­um að kólna í form­inu í nokkr­ar mín­út­ur og takið þær svo úr form­inu og leyfið að kólna á kökugrind.
  13. Berið síðan Magda­len­urn­ar fram á fal­leg­an hátt og skreytið jafn­vel með ein­hverju frönsku. Sum­ir strá flór­sykri yfir kök­urn­ar þegar þær eru born­ar fram og það þykir líka mjög fal­legt og gott.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert