Litlar og krúttlegar brauðtertur með rækjusalati

Litlar og krúttlegar brauðtertur með rækjum eiga vel við á …
Litlar og krúttlegar brauðtertur með rækjum eiga vel við á borðið í góðum félagsskap. Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

Eins og við þekkj­um flest eru brauðtert­ur frá­bær­ar á veislu­borðið og njóta mik­illa vin­sælda hjá lands­mönn­um. Það þarf hins veg­ar ekk­ert að efna til veislu né að sækja þær til að hægt sé að njóta þess­ara lystisemda og það er í góðu lagi að út­búa litl­ar og krútt­leg­ar brauðtert­ur eins og Val­gerður Gréta Grön­dal mat­ar­blogg­ari, alla jafna kölluð Valla, gerði á dög­un­um. Brauðtert­ur er hægt að græja á skömm­um tíma í lít­illi út­gáfu eins og eins og Valla gerði.

Valgerður Gréta Gröndal á heiðurinn af þessum dásamlegu litlu brauðtertum.
Val­gerður Gréta Grön­dal á heiður­inn af þess­um dá­sam­legu litlu brauðtert­um. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

„Rækju­sal­atið sem ég nota í tert­urn­ar er bara þetta klass­íska góða. Það má auðvitað krydda það að vild, breyta og bæta. Jafn­vel prófa með öðrum salöt­um. Maj­ónesið sem ég notaði er mitt allra mesta upp­á­hald. Mér finnst skipta máli hvaða maj­ónes er notað og hef prófað þau mörg en vel þetta alltaf eft­ir að ég prófaði það fyrst,“ seg­ir Valla með bros á vör.

Skemmti­leg hug­mynd í brauðtertu­keppn­ina

Hér er kom­in skemmti­leg hug­mynd að brauðtert­um sem gætu meðal ann­ars keppt í Íslands­keppn­inni í brauðtertu­gerð sem framund­an er. Keppn­in er hald­in af Brauðtertu­fé­lagi Erlu og Erlu í sam­starfi við út­gáfu­fé­lagið Sög­ur. Stefn­an er að gefa út bók um brauðtertu­gerð og með upp­skrift­um að brauðtert­um og það væri kær­komið að fá líka hug­mynd­ir af minni brauðtert­um.

Litlar og krúttlegar brauðtertur með rækjusalati

Vista Prenta

Litl­ar krútt­leg­ar brauðtert­ur að hætti Völlu

  • 8 fín­ar sam­loku­brauðsneiðar
  • 500 g stór­ar rækj­ur
  • 4 harðsoðin egg
  • 4 kúfaðar msk. Heinz Ser­i­ously Good Mayonnaise + meira til að smyrja
  • Safi úr ½ sítr­ónu
  • Nýmalaður svart­ur pip­ar og sjáv­ar­salt eft­ir smekk
  • 1 msk. fersk stein­selja
  • ½ ag­úrka, skor­in í þunn­ar sneiðar langs­um
  • Ferskt dill
  • Gul paprika söxuð

Aðferð:

  1. Sjóðið egg­in og kælið.
  2. Skerið skorp­una af brauðinu.
  3. Þýðið rækj­urn­ar og pressið mesta vökv­ann úr þeim á eld­húspapp­ír.
  4. Saxið rækj­urn­ar smátt og setjið í skál. Skiljið smá eft­ir fyr­ir skraut.
  5. Setjið maj­ónes, sítr­ónusafa og krydd sam­an við og hrærið.
  6. Takið eina brauðsneið og setjið á bretti eða disk.
  7. Setjið rækju­sal­at ofan á og leggið aðra brauðsneið ofan á.
  8. Þegar fjórða sneiðin hef­ur verið lögð á, smyrjið þá tert­urn­ar að utan með maj­ónes­inu.
  9. Skerið ag­úrku í sneiðar og raðið utan um brauðtert­urn­ar.
  10. Ann­ars er hægt að skreyta þær með hverju sem ykk­ur dett­ur í hug.
  11. Valla notaði ag­úrk­ur, saxaðar rækj­ur, ferskt dill og saxaða gula papriku.
  12. Berið fram fyr­ir þá sem ykk­ur lang­ar að gleðja og njótið. Upp­lagt að bjóða upp á vel val­inn freyðandi drykk með.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert