Gabríel býður í veislu á Spáni

Gabríel Kristinn Bjarnason landsliðskokkur bauð til veislu á Spáni og …
Gabríel Kristinn Bjarnason landsliðskokkur bauð til veislu á Spáni og galdraði fram þennan dýrðlega forrétt - Smálúðu-Crudo. Samsett mynd

Gabrí­el Krist­inn Bjarna­son mat­reiðslumaður og landsliðskokk­ur hef­ur farið á kost­um í sum­ar­frí­inu sínu á Spáni þar sem hann hef­ur verið að töfra fram synd­sam­lega ljúf­fenga rétti sem er mjög ein­falt að út­búa að hans sögn. Ástríðan hans er ein­mitt að ein­falda mat­ar­gerðina og sýna fólki að hægt er að halda mat­ar­veislu án þess að það sé of flókið.

Á dög­un­um bauð hann fjöl­skyldu og vin­um í mat­ar­veislu í frí­inu á Spáni og galdraði fram þenn­an ómót­stæðilega góða for­rétt sem á sér fáa líka, smá­lúðu-crudo með ljúf­fengri dress­ingu.

Vin­sæll for­rétt­ur

„Þetta er með ein­fald­ari rétt­um sem hægt er að út­búa fyr­ir fjöl­skyldu eða vini í frí­inu. „Crudo“ þýðir hrátt á ít­ölsku og er vin­sæll for­rétt­ur sem er oft­ast borðaður á sumr­in í sól­inni með góðu hvít­víni og sam­an­stend­ur af fersk­asta fisk­in­um sem völ er á  að hverju sinni og árstíðabundnu hrá­efni og oft­ast bor­inn fram með góðri ólífu­olíu,“ seg­ir Gabrí­el sem hef­ur svo sann­ar­lega notið þess að bjóða upp á ljúf­fenga rétti í sum­ar­frí­inu.

„Ég ákvað að nota það fersk­asta sem ég fann á markaðinum hér á Spáni sem var ný­veidd smá­lúða og kirsu­ber.“

Sjáið hvernig Gabrí­el fer að.

Gabríel býður í veislu á Spáni

Vista Prenta

Smá­lúðu-Crudo

  • Smá­lúðuflök
  • Crudo-dress­ing, sjá upp­skrift fyr­ir neðan
  • Kirsu­ber
  • Fersk stein­selja
  • Ferskt tim­i­an

Smá­lúðan

  • 4 stk. lúðuflök
  • Salt eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hreinsa og roðfletta lúðuna.
  2. Skerið lúðuna síðan í þunna „shasimi“ bita eins og er á nig­iri sus­hi og raðið á fal­leg­an disk sem á vel við til­efnið.
  3. Kryddið til með salti og sett inn í kæli á meðan dress­ing­in og meðlæti er und­ir­búið.

Crudo-dress­ing

  • 3 msk. góð extra virg­in ólífu­olía
  • 1 msk. ses­a­mol­ía
  • 2 msk. sojasósa
  • 1 tsk. syk­ur
  • 1 msk. hrís­grjóna­e­dik eða hvít­vín­se­dik
  • 1 msk. smátt saxaður skalot­lauk­ur
  • 1 tsk. hvít­lauk­ur smátt saxaður
  • 1 msk. smátt söxuð fersk stein­selja
  • Safi úr límónu eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að saxa græn­metið og setja til hliðar.
  2. Takið næst til skál og setjið ol­í­urn­ar, sojasós­una og ed­ikið sam­an í skál­ina ásamt sykr­in­um.
  3. Leyfið síðan sykr­in­um að leys­ast upp áður en græn­met­inu er bætt við.
  4. Kreistið síðan smá safa úr límónu í dress­ing­una.
  5. Þegar þetta er allt komið sam­an er dress­ing­in til­bú­in.
  6. Dreifið síðan dress­ing­unni jafnt yfi­ir smá­lúðubit­ana á diskn­um.

Ferskt meðlæti á topp­inn

  • Fersk kirsu­ber
  • Fersk­ir stein­selju topp­ar
  • Ferskt tim­i­an

Aðferð:

  1. Skerið kirsu­ber­in í fjórðunga og setjið ofan á hvern lúðubita, svo all­ir fái kirsu­ber í hverj­um bita.
  2. Skreytið síðan með stein­seljutopp­um og fersku tim­i­an.
  3. Berið fram með góðu hvít­víni ef vill og njótið í góðum fé­lags­skap.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert