Sykurlausir og seðjandi kasjúíspinnar

Þessa þurfa allir að prufa!
Þessa þurfa allir að prufa! Skjáskot/Instagram

Hild­ur Ómars­dótt­ir, mat­ar­blogg­ari og grænkeri, töfr­ar reglu­lega fram góm­sæta og kræsi­lega grænkera­rétti sem hitta alltaf í mark. Hún leit­ar gjarn­an inn­blást­urs á sam­fé­lags­miðlum og gerði girni­lega kasjúí­spinna með vanillu og pist­asíu­hnet­um eft­ir að hafa rek­ist á ótal mynd­ir á In­sta­gram af ís og súkkulaði. 

Kasjúí­spinn­arn­ir eru syk­ur­laus­ir og seðjandi. 

Sykurlausir og seðjandi kasjúíspinnar

Vista Prenta

Kasjúí­spinn­ar með vanillu og pist­asíu­hnet­um

  • 1,50 dl kasjúhnet­ur 
  • 1,50 dl pist­asíu­hnet­ur
  • 6 stór­ar me­djoul-döðlur (má skipta út fyr­ir hlyn­sýróp)
  • 1 stk. dós af kó­kos­mjólk 
  • 3/​4 tsk vanillu­duft
  • Dökkt súkkulaði 
  • Salt og pist­asíu­hnet­ur til að skreyta

Aðferð:

  1. Byrjið á að láta kasjúhnet­urn­ar liggja í bleyti í nokkra klukku­tíma (viðmið sex klukku­stund­ir). 
  2. Hellið vatn­inu af hnet­un­um og setjið hnet­urn­ar, döðlurn­ar (ath! þarf að stein­hreinsa), vanillu og kó­kos­mjólk í bland­ara og blandið þar til áferðin er orðin slétt. 
  3. Hellið blönd­unni í íspinna­form og komið fyr­ir inni í frysti þar til þeir frosna. 
  4. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið íspinn­ana með súkkulaði. Toppið íspinn­ana með smá salti og muld­um pist­asíu­hnet­um. Súkkulaðið storkn­ar um leið. 
  5. Ef þið klárið íspinn­ana ekki um leið þá geym­ast þeir í frysti í dágóðan tíma. Best er að láta þá þiðna í nokkr­ar mín­út­ur eft­ir að þeir eru tekn­ir úr fryst­in­um til að finna fyr­ir mjúkri áferð. 
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert