Kóngurinn kveður en Daddi tekur við

Saga Pizza King í Skipholti er á enda en þar …
Saga Pizza King í Skipholti er á enda en þar verður Daddi's Pizza opnuð í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Eig­end­ur Dadd­i’s Pizza í Mý­vatns­sveit hafa fest kaup á Pizza King í Skip­holti og hyggj­ast opna þar nýj­an pitsustað með haust­inu. Þuríður Helga­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Voga ferðaþjón­ustu sem á og rek­ur Dadd­i’s, seg­ir að breyt­ing­ar verði gerðar á staðnum og nú sé unnið að þeim. „Við tök­um okk­ur samt bara okk­ar tíma. Við erum í full­um rekstri hér fyr­ir norðan og nú er há­anna­tími. Það má því bú­ast við að við get­um opnað í lok ág­úst eða sept­em­ber,“ seg­ir hún.

Þuríður og Þór­hall­ur Kristjáns­son maður henn­ar hafa rekið Dadd­i’s Pizza við góðan orðstír um 15 ára skeið. Staður­inn er lít­ill en hef­ur þjónað bæði heima­fólki og ferðamönn­um vel. Vandað er til verka og seg­ir Þuríður að bú­ast megi við að það hand­bragð fylgi þeim suður yfir heiðar.

Dadd­i’s verði fjöl­skyldu­vænn hverf­isstaður

„Við höf­um haft það á bak við eyrað hvort ekki væri hægt að gera eitt­hvað skemmti­legt þarna fyr­ir sunn­an. Marg­ir hafa ein­mitt spurt okk­ur af hverju við reyn­um ekki að koma okk­ur fyr­ir þar með okk­ar pitsur. Nú ákváðum við bara að slá til. Þetta verður skemmti­leg til­raun og til­breyt­ing,“ seg­ir hún.

Þuríður seg­ir að svipað yf­ir­bragð verði á staðnum fyr­ir sunn­an. Þar verði vin­sæl­ustu pitsurn­ar á Dadd­i’s og ef til vill eitt­hvað fleira. Hún kveðst bú­ast við því að staður­inn muni bera Dadd­i’s-nafnið.

Pizza King var fyrst og fremst hugsaður til að fólk staldraði stutt við eða tæki pitsurn­ar með heim. Annað verður uppi á ten­ingn­um hjá Dadd­i’s í Skip­holti. „Við ákváðum að halda hon­um ekki bara sem take away-stað. Við vilj­um hafa þetta fjöl­skyldu­væn­an hverf­isstað þar sem fólk get­ur komið og sest inn.“

Rekst­ur Pizza King var aug­lýst­ur til sölu fyrr á þessu ári og var ásett verð 13 millj­ón­ir króna. Þuríður vill ekki upp­lýsa hvað þau hjón­in greiddu fyr­ir staðinn en seg­ir ein­fald­lega: „Ég borgaði það ekki.“

20 ára saga Pizza King á enda

Pizza King átti sér orðið nokkuð langa sögu í veit­inga­flóru borg­ar­inn­ar. Fyrsti staður­inn var opnaður í Hafn­ar­stræti 18 fyr­ir um tveim­ur ára­tug­um og naut mik­illa vin­sælda hjá skemmtanaglöðum ung­menn­um. Þar myndaði hann ákveðinn ramma um miðbæ­inn með Devito’s við Hlemm en ákveðin lík­indi hafa alltaf verið með stöðunum tveim­ur. Staðnum í Hafn­ar­stræti var síðar lokað og það hús gert upp.

Árið 2011 var staður­inn í Skip­holti opnaður. Þar gátu gest­ir valið úr tug­um pitsa af mat­seðli auk sam­loka. Fjöl­breytt til­boð þóttu afar lokk­andi og mikið var lagt í pitsu­gerðina ef marka má gaml­ar Face­book-færsl­ur Pizza King. „Fyr­ir okk­ur er það meira en bara vinna að gera pitsur með stökkri, gylltri skorpu og áleggj­um sem ná al­veg út á brún. Það er ástríða,“ sagði í einni slíkri.

Frétt­in birt­ist í Morg­un­blaðinu 24. júlí.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert