Þetta eru átta vinsælustu ávextir heims

Á listanum eru átta vinsælustu ávextir heims!
Á listanum eru átta vinsælustu ávextir heims! Ljósmynd/Pexels/Alleksana

Ávext­ir eru vin­sæl­ir um all­an heim enda eru þeir ljúf­feng­ir, til­bún­ir til neyslu og inni­halda mikið af nauðsyn­leg­um nær­ing­ar­efn­um á borð við trefjar og víta­mín. Hægt er að njóta ávaxta á ýms­an máta, til dæm­is í þeyt­ing­um, bakstri, ís, mat­reiðslu og til að skreyta rétti. 

Listi yfir átta vin­sæl­ustu ávexti heims birt­ist á vef WorldAtlas, en það gæti komið ein­hverj­um á óvart að sjá hvaða ávöxt­ur er vin­sæl­ast­ur á heimsvísu!

1. Tóm­at­ar

Árleg upp­skera af tómöt­um nem­ur 182 millj­ón tonn­um og eru þeir því vin­sæl­asti ávöxt­ur heims. Villt­ir tóm­at­ar eru upp­runa­lega frá And­es­fjöll­um, vest­ur­héröðum Bóli­víu, Perú, Chile og Ekvador, en þeir voru fyrst ræktaðir um 700 e.Kr. og síðar flutt­ir til Evr­ópu af land­könnuðum.

Tóm­at­ar eru notaðir í nokkra af vin­sæl­ustu rétti heims, eins og pítsur, pasta, tóm­atsósu, salöt og fleira.

2. Ban­an­ar

Upp­skera ban­ana nem­ur rúm­um 115 millj­ón tonn­um á ári, en þeir eru næst­vin­sæl­asti ávöxt­ur heims. Talið er að þeir eigi upp­runa sinn að rekja til Suður-Kyrra­hafs eða Suðaust­ur-Asíu fyr­ir um 10.000 árum, eða í kring­um 8.000 til 5.000 f.Kr.

Ban­an­ar þykja sér­lega þægi­leg­ir sem snarl á ferðinni, en þeir koma pakkaðir inn í eig­in hlífðarlag sem auðvelt er að afhýða og það þarf ekki að þvo þá. 

3. Vatns­mel­óna

Árlega nem­ur upp­skera á vatns­mel­ón­um rúm­um tæp­lega 104 millj­ón tonn­um. Það er fátt sem topp­ar brak­andi ferska og safa­ríka vatns­mel­ónu á heit­um sum­ar­degi, en þær eiga upp­runa sinn að rekja til Egypta­lands. 

Vatns­mel­ón­ur eru vin­sælt snarl en eru einnig notaðar til að út­búa hina ýmsu drykki og kokteila, bæði áfenga og óá­fenga.

4. Epli

Upp­skera epla nem­ur rúm­um 86 millj­ón tonn­um á ári. Þau eru upp­run­in í Mið-Asíu og fund­ust fyrst í suður­hluta Kasakst­an um 2.000 f.Kr.

Í dag koma epli í nokkr­um mis­mun­andi af­brigðum sem eru mis­mun­andi á lit­inn en bjóða líka upp á ólík­an sæt­leika og áferð. 

5. App­el­sín­ur

Á hverju ári nem­ur upp­skera á app­el­sín­um rúm­um 75 millj­ón tonn­um á heimsvísu. App­el­sín­ur voru fyrst ræktaðar í Kína í kring­um 2.500 f.Kr. og komu til Am­er­íku í ann­arri ferð Kól­umbus­ar árið 1493.

App­el­sín­ur eru ekki bara vin­sæl­ar til að borða held­ur líka að drekka, en app­el­sínusafi er einn vin­sæl­asti safi í heimi og þykir sér­lega góður með morg­un­mat.

6. Mangó

Upp­skera á mangó nem­ur rúm­um 40 millj­ón tonn­um á ári. Mangó hef­ur verið ræktað í yfir 4.000 ár og kem­ur fyrst frá Indó-Mjan­maríu svæðinu. Það var ekki fyrr en á 18. öld sem mangó barst til Am­er­íku.

Mangó þykir vera „of­urávöxt­ur“ sem býður upp á C-víta­mín, B6-víta­mín og trefjar. Þá eru mangó tal­in hafa já­kvæð áhrif á heilsu heil­ans og kyn­hvöt.

7. Per­ur

Á ári hverju nem­ur upp­skera á per­um tæp­lega 24 millj­ón tonn­um. Per­ur eiga upp­runa sinn að rekja til nokk­urra heims­hluta, þar á meðal Evr­ópu, Asíu og norður­hluta Afr­íku. Per­ur hafa verið ræktaðar í Kína í að minnsta kosti 3.000 ár. 

Per­ur eru ekki bara þægi­legt milli­mál til að grípa með sér held­ur einnig vin­sæl­ar í bakst­ur og eft­ir­rétti, í salöt og þeyt­inga. 

8. Lárpera

Upp­skera á lárperu nem­ur yfir 6 millj­ón tonn­um á hverju ári. Ávöxt­ur­inn á ræt­ur sín­ar að rekja til Suður-Mexí­kó í kring­um 8.000 til 5.000 f.Kr.

Lárpera inni­held­ur góða fitu og trefjar og er vin­sæl ofan á brauð, í hina ýmsu rétti, þeyt­inga, salöt og jafn­vel eft­ir­rétti!

Ljós­mynd/​Unsplash/​Emprein­te
Ljós­mynd/​Unsplash/​Al­ex­and­er Mills
Ljós­mynd/​Unsplash/​Al­ex­and­er Mills
Ljós­mynd/​Unsplash/​Daiga Ella­by
Ljós­mynd/​Unsplash/​Jaroen van Nierop
Ljós­mynd/​Unsplash/​Al­ex­and­er Mills
Ljós­mynd/​Pex­els/​Marta Dze­dys­h­ko
Ljós­mynd/​Pex­els/​Cott­on­bro studio
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert