Rabarbarapæ með súkkulaði úr Móberginu

Dýrðlegt rabarbarapæ með súkkulaði borið fram með ís og karamellusósu …
Dýrðlegt rabarbarapæ með súkkulaði borið fram með ís og karamellusósu úr Móberginu sem bráðnar í munni. Samsett mynd

Það er komið að helgar­bakstr­in­um og viðeig­andi er að nýta hrá­efni úr nátt­úr­unni í bakst­ur­inn og bjóða upp á ljúf­feng­ar kræs­ing­ar með kaff­inu. Nú fer senn að líða að seinni upp­sker­unni á rabarbar­an­um og þá er rabarbar­inn orðinn súr­ari en hann var í vor. Þá er gott að bæta svo­lítið að af sætu með rabarbar­an­um sem er gott mót­vægi við súra bragðið.

Ástríðubak­ar­inn Brynja Dadda Sverr­is­dótt­ir í Mó­berg­inu upp í fjall­inu í Kjós er frjó af hug­mynd­um hvernig má nýta rabarbar­ann og deil­ir hér með les­end­um Mat­ar­vefs­ins dýrðlegri upp­skrift að ein­földu rabarbarapæi með súkkulaði sem á eft­ir að slá í gegn. Brynja hef­ur verið iðin við að deila með les­end­um upp­skrift­um í sum­ar og það má með sanni segja að þær hafi all­ar hitt í mark.

Rabarbarapæið hitt­ir ávallt í mark þegar gesti ber að garði og barna­börn­in vita fá betra en að fá nýbakaðar kræs­ing­ar þegar þau koma í heim­sókn. Við hjón­in njót­um stund­um líka bara tvö. Ef við erum bara tvö í kaffi nota ég lítið form og í það fara um það bil 4 stöngl­ar, niður­skorn­ir og 50 g af hveiti, sykri og smjöri, þannig er hægt að leika sér aðeins með þessa upp­skrift,“ seg­ir Brynja með bros á vör.

Svo girnilegt að horfa á.
Svo girni­legt að horfa á. Ljós­mynd/​Brynja Dadda Sverr­is­dótt­ir

Rabarbarapæ með súkkulaði úr Móberginu

Vista Prenta

Rabarbarapæ með súkkulaði

Í eld­fasta mótið/​formið

  • Smjör eft­ir smekk, til að smyrja formið
  • Niðursneidd­ur rabarbari eft­ir smekk, um það bil 8 stöngl­ar er hæfi­legt magn
  • Súkkulaði eft­ir smekk, gróft saxað eða brytja niður
  • Syk­ur ef vill, til að strá yfir rabarbar­ann

Deigið yfir rabarbar­ann

  • 120 g smjör
  • 120 g hrá­syk­ur
  • 120 g hveiti (má líka setja haframjöl á móti hveit­inu ef vill)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að finna til gott eld­fast fat/​mót sem hæf­ir til­efn­inu og hafið stærð miðað við fjölda heim­il­is­manna og/​eða gesta.
  2. Smyrjið formið aðeins með smjöri.
  3. Setjið síðan gott botn­fylli af niðursneidd­um rabarbara, gott að miða við að ekk­ert sjá­ist í botn­inn, þetta eru sirka 8 stöngl­ar sem passa í þessa upp­skrift.
  4. Brytjið eða grófsaxið súkkulaði yfir, bara það súkkulaði sem er til, suðusúkkulaði eða eitt­hvað annað, sum­ir þola illa súra bragðið. Þá er allt í lagi að setja pínu­lítið af sykri yfir líka.
  5. Hitið ofn­inn í 200°C hita.
  6. Setjið fatið/​mótið í heit­an ofn­inn og bakið í 25 til 30 mín­út­ur.
  7. Pæið á að vera aðeins bullandi und­ir og brak­andi stökkt ofan á þegar það er til­búið, það má jafn­vel setja pæið aðeins und­ir grill til að fá það vel stökkt. 
  8. Berið fram með ís og kara­mellusósu og njótið. Það má líka bera pæið fram með þeytt­um rjóma og vanillusósu, bæði gott.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert