Fylltar brauðstangir og heimagerð brauðstangasósa með basilíku

Brauðstangir og heimagerð brauðstangasósa úr smiðju Árna Þorvarðarsonar.
Brauðstangir og heimagerð brauðstangasósa úr smiðju Árna Þorvarðarsonar. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson

Árni Þor­varðar­son bak­ari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi elsk­ar að baka pítsur og alls kon­ar meðlæti úr pít­sa­deigi á ít­alska vísu. Hann hef­ur verið iðinn við að deila með les­end­um Mat­ar­vefs­ins upp­skrift­um úr smiðju sinni á föstu­dög­um og það verður eng­in und­an­tekn­ing á því í dag. Að þessu sinni býður Árni les­end­um upp á brauðstang­ir og heima­gerða brauðstangasósu.

Árni Þorvarðarson bakari er með mikla ástríðu fyrir ítalskri matargerð, …
Árni Þor­varðar­son bak­ari er með mikla ástríðu fyr­ir ít­alskri mat­ar­gerð, sér­stak­lega pítsu­gerð og allt sem henni fylg­ir. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Oft þjónaðar sem for­rétt­ur

Brauðstang­ir eru ekta föstu­dags­rétt­ur og marg­ir fá sér brauðstang­ir með pítsu. Brauðstang­ir eru líka oft þjónaðar sem for­rétt­ur með sósu eða dippi, eins og tóm­atsósu, pestósósu eða hvít­laukss­mjöri. Þær geta einnig verið gott meðlæti með  sal­ati eða súp­um. Brauðstang­ir eru fjöl­breytt­ar og bragðmikl­ar og því oft vin­sæl­ar á mat­seðlum á veit­inga­stöðum.

Fylltar brauðstangir og heimagerð brauðstangasósa með basilíku

Vista Prenta

Fyllt­ar brauðstang­ir

  • 581 g pít­sa­hveiti                   
  • 365 g vatn 26°C heit
  • 17 g súr­deig (má sleppa ef vill)       
  • 5 g þurr­ger                            
  • 17 g salt                                 
  • 17 g olía

Fyll­ing:

  • Rif­inn mozzar­ella­ost­ur eft­ir smekk
  • Brauðstangakrydd­blanda eða krydd að eig­in vali, eins og óreg­anó og basilíkukrydd 

Aðferð:          

  1. Vigtið sam­an hveiti, vatn, súr og ger.
  2. Setjið í hræri­véla­skál með krók.
  3. Hrærið sam­an í 5 mín­út­ur á 30% hraða.
  4. Eft­ir 5 mín­út­ur bætið þið salt­inu við og hrærið áfram í 5 mín­út­ur í viðbót.
  5. Eft­ir aðrar 5 mín­út­ur er olí­an sett sam­an við og deigið hrært í síðustu 5 mín­út­urn­ar.
  6. Eft­ir þetta hafið þið hrært deigið í sam­tals 15 mín­út­ur.
  7. Leyfið deig­inu að hvílast í 2 tíma við stofu­hita.
  8. Vigtið deigið síðan niður í 8 stykki 125 g kúl­ur og setjið í lokað box og í kæli í lág­marki 12 klukku­stund­ir.
  9. Fletjið síðan deigið út í hring með hveiti und­ir, gott að nota pít­sa­hveiti.
  10. Setjið mozzar­ella­ost á milli ásamt brauðstangakrydd­blöndu eða því kryddi sem ykk­ur lang­ar að vera með.
  11. Brjótið hinn hluta deigs­ins yfir og klípið sam­an.
  12. Setjið rif­inn ost­ur ofan á fyr­ir bakst­ur.
  13. Bakað í 400°C– 500°C g heit­um pít­sa­ofni (viðar eða gas) í 120-180 sek­únd­ur.
  14. Penslið með kryddol­íu eft­ir bakst­ur.
  15. Berið fram með brauðstangasósu og njótið.

Brauðstangasósa með ferskri basilíku

  • 3 stk. af­hýdd­ir tóm­at­ar                    
  • 1 tsk. salt                                           
  • 15 fersk basilíku­lauf­blöð                 
  • Ólífu­olía eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Blandið öllu sam­an í mat­reiðslu­vél og maukið.
  2. Hægt að krydda til eft­ir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert