Subbupési uppáhaldshamborgarinn hans Huga

Hugi Rafn Stefánsson landsliðskokkur og kokkur á veitingastaðnum OTO, með …
Hugi Rafn Stefánsson landsliðskokkur og kokkur á veitingastaðnum OTO, með uppáhalds hamborgarann sinn. Ljósmynd/Anton Brink

Hugi Rafn Stef­áns­son mat­reiðslumaður á veit­ingastaðnum OTO svipt­ir hér hul­unni af sín­um upp­á­halds­ham­borg­ara sem hann kall­ar Subbupésa, sem er nafn með rentu. 

Hugi er 24 ára gam­all og er meðlim­ur í ís­lenska kokka­landsliðinu sem gerði garðinn fræg­an á Ólymp­íu­leik­un­um í mat­reiðslu í ár þegar það hlaut bronsverðlaun. Hugi veit fátt skemmti­legra en að grilla á sumr­in og er iðinn við að grilla ham­borg­ara og bera þá fram með girni­legu meðlæti sem kitl­ar bragðlauk­ana.

„Minn upp­á­halds er grillaður ham­borg­ari í kart­öflu­ham­borg­ara­brauði frá Le Kock, með tvö­faldri osta­blöndu af chedd­ar- og am­er­ísk­um osti, heima­gerðri beikonsultu, chipotle-maj­ónesi, steikt­um svepp­um, pikkluðum rauðlauk og stökk­um lauk,“ seg­ir Hugi og bæt­ir við að þessi borg­ari sé subbu­lega góður að njóta.

Hamborgarinn hans Huga er hinn girnilegasti með bræddri ostablöndu, beikonsultu, …
Ham­borg­ar­inn hans Huga er hinn girni­leg­asti með bræddri osta­blöndu, beikonsultu, pikkluðum rauðlauk, steikt­um svepp­um og chipotle-sósu. Ljós­mynd/​Ant­on Brink

„Ég nota ein­göngu ham­borg­ara­brauðin frá Le Kock þegar ég geri ham­borg­ara. Það eru bestu kart­öflu­brauðin sem þú kemst í og það er hægt að kaupa þau hjá þeim í baka­rí­inu Deigi,“ seg­ir Hugi. „Síðan finnst mér ómiss­andi að vera með heima­gerða beikonsultu og all­ar sós­ur geri ég helst sjálf­ur. Það er svo miklu betra að vera með heima­til­bún­ar sós­ur.“

Huga finnst langbest að borða hamborgarann með höndunum og bíta …
Huga finnst lang­best að borða ham­borg­ar­ann með hönd­un­um og bíta í hann frem­ur en að skera hann með hnífa­pör­um. Þannig nær hann bragðbomb­unni í gegn. Ljós­mynd/​Ant­on Brink

Subbupési uppáhaldshamborgarinn hans Huga

Vista Prenta

Subbupés­inn hans Huga
Fyr­ir 2

  • 2 stk. 170 g ham­borg­ar­ar að eig­in vali
  • 2 kart­öflu­brauð frá Le Kock
  • 4 sneiðar chedd­ar-ost­ur
  • 4 sneiðar am­er­ísk­ur ost­ur
  • beikonsulta eft­ir smekk (sjá upp­skrift)
  • chipotle-maj­ónes eft­ir smekk (sjá upp­skrift)
  • pikklaður rauðlauk­ur (sjá upp­skrift)
  • stökk­ur lauk­ur ef vill

Beikonsulta

  • 500 g bei­kon, skorið í litla bita
  • 1 lauk­ur, smátt saxaður
  • 4 skalott­lauk­ar, saxaðir
  • 2 hvít­lauks­geir­ar, saxaðir
  • ½ bolli púður­syk­ur
  • ¼ bolli hlyns­íróp
  • 1/​3 bolli epla­e­dik
  • 1 tsk. chili­duft

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka til miðlungs­stór­an pott og setjið á hellu og hitið á miðlungs­hita.
  2. Setjið síðan bei­konið í pott­inn þegar hann hef­ur hitnað og steikið þar til það verður stökkt.
  3. Flytjið síðan bei­konið yfir á papp­írsklædd­an disk.
  4. Lækkið hit­ann aðeins und­ir pott­in­um og bætið lauk og skalott­lauk í pott­inn og steikið, hrærið oft eða þar til lauk­ur­inn er kara­mellíseraður, um það bil 15 mín­út­ur.
  5. Hrærið hvít­lauk, púður­sykri, hlyns­írópi, ed­iki, chili­dufti og soðnu bei­koni sam­an við lauk­ana.
  6. Látið blönd­una sjóða og lækkið síðan hit­ann al­veg niður.
  7. Eldið þar til vökvinn hef­ur minnkað og þykknað og lauk­ur­inn verður sultaður, tek­ur 7-10 mín­út­ur. L
  8. Látið beikonsult­una kólna áður en hún er notuð.

Chipotle-sósa

  • 150 g maj­ónes
  • 2 tsk. chipotle-mauk
  • 1 hvít­lauks­geiri

Aðferð:

  1. Setjið allt hrá­efni sam­an í bland­ara og maukið í u.þ.b. eina mín­útu eða þar til sós­an er slétt. Setjið í litla skál og kælið þar til fyr­ir notk­un.

Pikklaður rauðlauk­ur

  • 4 rauðlauk­ar
  • 1 dl edik (mat­reiðslu­e­dik 5%)
  • 2 dl syk­ur
  • 3 dl vatn

Aðferð:

  1. Setjið edik, vatn og syk­ur í pott og látið sjóða þar til syk­ur­inn hef­ur bráðnað.
  2. Skerið rauðlauk­inn í sneiðar og komið hon­um fyr­ir í pass­legu íláti sem hægt er að loka og þolir hita.
  3. Hellið svo ed­ik­blönd­unni yfir lauk­inn og setjið til hliðar.
  4. Leyfið laukn­um að standa í að minnsta kosti 15 mín­út­ur; því leng­ur sem hann fær að liggja í ed­ikvökv­an­um, því sæt­ari verður hann.

Steikt­ir svepp­ir

  • Flúðasvepp­ir, magn eft­ir smekk
  • Salt eft­ir smekk
  • Ólífu­olía eft­ir smekk og þörf­um

Aðferð:

  1. Skerið svepp­ina í sneiðar og hitið pönnu þar til hún byrj­ar að ósa. S
  2. kellið þá olíu á pönn­una og bætið við svepp­um ásamt salti eft­ir smekk.
  3. Steikið þar til þeir verða gull­in­brún­ir.

Ham­borg­ar­arn­ir og sam­setn­ing:

  1. Byrjið á að gera beikonsultu, chipotle-sósu og pikklaðan rauðlauk.
  2. Næst steikið þið svepp­ina og loks ham­borg­ar­ana.
  3. Steikið borg­ar­ana á vel heitu grilli eða vel heitri pönnu, 4-5 mín­út­ur á hvorri hlið.
  4. Kryddið til með pip­ar og salti eft­ir smekk. Þegar þið snúið ham­borg­ur­un­um við setjið þá ostsneiðarn­ar, tvær af hvor­um osti, ofan á þá og látið bráðna.
  5. Setjið síðan ham­borg­ara­brauðin, botn­inn og lokið, á hvolf á grillið og hitið aðeins.
  6. Þá setjið þið ham­borg­ar­ana sam­an eins og þið viljið hafa þá.
  7. Gott að setja beikonsult­una á botn­inn og sós­una, síðan borg­ar­ann, loks pikklaða rauðlauk­inn ásamt steikt­um svepp­um og stökk­um lauk ef þið kjósið að hafa hann líka.
  8. Loks er bara að bera fram Subbupés­ann og njóta hvers bita!
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert