Nýr veitingastaður, Sól, opnaði í vikunni við Óseyrarbraut í Hafnarfirði og má með sanni segja að staðurinn sé falinn demantur við Hafnarfjarðarhöfn. Það er án ef hægt að segja að þetta sé einn fallegustu veitingastöðum landsins. Hann er staðsettur inni í lifandi gróðurhúsi þar sem gestir borða yfir blómlegri og gróskumikilli uppskeru.
Staðurinn er staðsettur í einstöku umhverfi á miðju athafnasvæði hafnarinnar með útsýni yfir Hvaleyrina. Gestir fá því að njóta útsýnis yfir gróðurhúsið þar sem ræktað er salat, tómatar, gúrkur og matjurtir fyrir eldhúsið og barinn. Ásamt því að litið er inn í fagurt lónið, svo það er himneskt útsýni hvert sem litið er, líkt og lifandi málverk. Áherslan í matargerðinni er metnaðarfull og notast er við ferskasta hráefnið sem völ er á að hverju sinni, þar á meðal grænmeti úr eigin framleiðslu sem gefur gestum beina tengingu við gróðurhúsið.
Þegar inn er komið fangar hönnunin á staðnum augun og í raun öll skilningarvitin, Hönnunin einstök þar sem sambland af grænum jurtum, náttúrustein og lifandi viður spila stærstan þáttinn og býr til náttúrlegt og afslappað andrúmsloft sem eru engu líkt. Að borða á stað sem þessum býður upp á magnaða matarupplifun sem er innblásin af náttúrufegurð og rómantík sem lætur engan ósnortin.
Í tilefni að opnunin var boðið til opnunarteitis þar sem gestir fengu að njóta ljúffengra kræsinga og náttúrufegurðar sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Gestirnir voru alveg dolfallnir yfir fegurðinni og mátti sjá geislandi bros á hverju andliti. Meðal gesta sem fögnuðu opnunni voru Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæja og eiginmaður hennar Jónas Sigurgeirsson, Heiðrún Lind Marteinsdótir og Hjörvar Hafliðason svo fátt sé nefnt.
Við munum fjalla nánar um þennan nýja veitingastað, Sól, á næstu dögum.
Sjáið myndirnar!