Siggi Chef og Brixton bjóða í svakalegt matarpartí

Siggi Chef sem vann titilinn besti Götubiti Íslands 2024 fyrir …
Siggi Chef sem vann titilinn besti Götubiti Íslands 2024 fyrir grillað nauta-brisket býður í blokk partí á Menningarnótt. Ljósmynd/Aðsend

Mikið verður um dýrðir á Menn­ing­arnótt á laug­ar­dag­inn næst­kom­andi þann 24. ág­úst og það verður boðið upp á mat­ar- og grill­veisl­ur út um alla borg. Meðal þeirra sem ætla að bjóða gest­um og gang­andi í grillaðar kræs­ing­ar er Sig­urður Gunn­laugs­son, bet­ur þekkt­ur und­ir nafn­inu Siggi Chef, sem vann titil­inn fyr­ir besta götu­bita Íslands í sum­ar. Hann og Brixt­on ætla að henda í svaka­legt blokk partí í port­inu við Tryggvagötu 20 á Menn­ing­arnótt.

Tæki­færi til að smakka Besta Götu­bita Íslands

Siggi Chef vann titil­inn fyr­ir grillað reykjt, nauta-bri­sket  og verður þessi rétt­ur í boði á viðburðinum. Siggi er jafn­framt yfir­kokk­ur á Brixt­on, en það er nýtt veit­ingakon­sept sem mun opna á næstu vik­um.

Siggi Chef verður tilbúinn við grllið á laugardaginn.
Siggi Chef verður til­bú­inn við grllið á laug­ar­dag­inn. Ljós­mynd/​Aðsend

Loks­ins gefst fólki tæki­færi á að smakka besta götu­bita Íslands árið 2024 á Menn­ing­arnótt. Kveikt verður á grill­inu upp úr klukk­an 15.00 og það verður frá­bær tón­list­ar­dag­skrá fram eft­ir degi. Kjöt, reyk­ur, bjór, tónlist, plötu­snúðar, Eternal Sound system og geggjaður fíl­ing­ur.

Þessi grillaða steik bráðnar í munni að sögn þeirra sem …
Þessi grillaða steik bráðnar í munni að sögn þeirra sem hafa prófað. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert