Hér er á ferðinni uppskrift að ómótstæðilega góðum fiskrétti, þorskhnökkum í hvítvínssósu. Það má segja að þessi fiskréttur sé betri gerðinni. Hvað er betra en að gera vel við sig á mánudegi og fá sér fisk í hvítvínssósu? Frakkinn Arthur Lawrence Sassi á og rekur franska bistróið La Cuisine á heiðurinn af þessari girnilegu uppskrift.
Arthur er mikill matgæðingur og nýtur þess fram í fingurgóma að töfra fram ljúffenga rétti, meðal annars úr sjávarfangi eins og fram kemur í viðtalinu við hann sem var í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
Arthur nýtur lífsins á Íslandi en hann vann sig upp frá uppvaski yfir í að eiga veitingastað. Hann mun bráðum opna annan stað, La Cusine, á Akureyri í nýrri mathöll.
mbl.is/Ásdís
Þorskur í hvítvínssósu
Fyrir 4
- 1 kg þorskhnakkar
- 4 stórar gulrætur, skornar í tvennt eftir endilöngu
- 1 stór nípa, skorin í fjóra bita
- 4 eggaldin
- 10 skalottlaukar
- 1 rauðvínsglas
- ólífuolía
- ½ lítri olía
- 1 búnt fersk steinselja
- 750 ml rjómi
- 2 hvítvínsglös
- 1 hvítlauksgeiri
- nokkur timíanlauf
Aðferð:
- Eggaldin-„duxelle“ er útbúið með því að saxa eggaldin og fimm skalottlauka mjög smátt.
- Steikið á pönnu í ólífuolíu og bætið út í glasi af rauðvíni.
- Þegar blandan byrjar að þykkna, takið þá til hliðar.
- Útbúið steinseljuolíu með því að setja steinselju, olíu, salt og pipar í blandara.
- Blandið kröftuglega og sigtið svo olíuna frá svo eftir verði steinseljumaukið.
- Setjið nípuna í eldfast mót með smá olíu, salti, pipar og timíanlaufum.
- Bakið þar til bitarnir verða mjúkir en samt með smá biti. Til að fá meira bragð, stillið á grill um stund í lokin.
- Útbúið hvítvínssósuna með því að bræða smjör í litlum potti með hvítlauknum og restinni af skalottulauknum þar til gullinbrúnn.
- Bætið þá hvítvíni saman við. Bætið síðan rjómanum saman við en ekki láta hann sjóða.
- Saltið og piprið eftir smekk.
- Skerið þorskinn í vænar sneiðar og steikið í olíu sem búið er að salta og pipra.
- Steikið í tvær mínútur á hvorri hlið og setjið svo í 180°C heitan ofn í fimm mínútur.
- Berið þorskinn fram með gulrót, nípu, eggaldinmauki, steinselju og hvítvínssósu.