Haustið er mætt í allri sinni dýrð og hefðbundin rútína komin í fastar skorður á flestum heimilum og sama má segja um fasta liði á Matarvef mbl.is. Líkt og síðasta vetur munu lesendur matarvefsins fá að njóta uppskrifta á hverjum laugardegi sem koma úr hinu leyndardómsfulla eldhúsi í Hússtjórnarskólanum.
Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans opnar uppskriftabók skólans í vetur líkt og í fyrra.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mun skólameistarinn Marta María Arnarsdóttir þar á bæ halda áfram að svipta hulunni af nokkrum vel völdum réttum sem eiga sér sögu og hafa fylgt Hússtjórnarskólanum gegnum tíðina og glatt mörg matarhjörtu. Fyrsta uppskrift haustsins sem kemur úr uppskriftabók Hússtjórnarskólans er heimalagað lasanja og snittubrauð. Lasanja er góður og saðsamur réttur sem yljar og á vel við á þessum árstíma.
Lasanja og snittubrauð að hætti Húsó
Lasanja
Hakkið
- 600 g nautahakk
- 1 laukur, saxaður
- 3 gulrætur, sneiddar
- 1 sellerístilkur, sneiddur
- 1 dós tómatar, 400 g
- 3 msk. tómatkraftur (lítil dós)
- Salt, pipar, hvítlaukur, eða salt, pipar, basilíka og óreganó eftir smekk
Aðferð:
- Steikið hakk og grænmeti á pönnu, bætið tómötum og kryddi saman við og sjóðið í 10 mínútur.
- Á meðan hakkið sýður er sósan bökuð upp, sjá uppskrift fyrir neðan.
Sósan
- 40 g smjör
- 5 msk. hveiti
- Mjólk eftir þörfum
- ½ - 1 tsk. múskat
- Salt eftir smekk
Aðferð:
- Bræðið smjörið á vægum hita í potti og blandið síðan hveitinu saman við svo úr verði smjörbolla.
- Bætið við mjólk eftir þörfum svo úr verði þykk sósa og kryddið til með múskati og salti eftir smekk.
- Mikilvægt er hræra stöðugt í sósunni svo að hún hleypi ekki í kekki.
Samsetning
- U.þ.b. 8 lasanja-plötur
- U.þ.b. 200 g rifinn ostur
- parmesanostur ef vill
Aðferð:
- Þegar hakkið og sósan er orðin klár er komið að því að setja allt saman svo úr verði myndarlegt lasanja.
- Byrjið á því að forhita ofninn í 150°C hita.
- Setjið helming kjötsins í eldfast mót, þá 4 lasanja-plötur, því næst helming af sósunni ásamt helming ostsins og endurtakið; setjið kjötið þar á eftir, þá 4 lasanja-plötur, restina af sósunni og ostinum.
- Gott er að setja einnig parmesanost efst ofan á.
- Setjið eldfasta mótið inn í ofn og bakið við 150°C í 45 mínútur.
- Berið lasanja-ið fram með nýbökuðu brauði, auka parmesanosti og fersku salati að eigin vali.
Löng snittubrauð
- 2 ½ dl ylvolgt vatn
- 2 ½ tsk. ger
- 1 tsk. sykur
- 1 tsk. salt
- 1 msk. olía
- 2 msk. hveitiklíð ef vill
- u.þ.b. 5 dl brauðhveiti
- Smjör, brætt
- Steinselja, söxuð
- 3-4 hvítlauksrif, söxuð
Aðferð:
- Leysið gerið og sykurinn upp í ylvolgu vatninu.
- Bætið síðan salti, olíu, hveitiklíð og brauðhveiti saman við.
- Látið hefast í u.þ.b. 40 mínútur.
- Mótið síðan 2-3 aflöng brauð og komið fyrir á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Látið hefast aftur í u.þ.b. 20 mínútur.
- Bræðið smávegis af smjöri á vægum hita, bætið smá saxaðri steinselju og söxuðum hvítlauk saman við og penslið á brauðin bæði fyrir og beint eftir bakstur.
- Bakið við 180°C hita í u.þ.b. 15-25 mínútur, fer eftir stærð brauða, eða þar til þau verða orðin gullinbrún.