Holla rækjusalatið hennar Elsu

Holla rækjusalatið hennar Elsu úr Frozen er skemmtilegt að setja …
Holla rækjusalatið hennar Elsu úr Frozen er skemmtilegt að setja saman í góðum félagsskap með börnunum. Samsett mynd

Um helg­ar fara oft fram bestu sam­veru­stund­ir fjöl­skyld­unn­ar og gott er að leggja mikið upp úr því að eiga góðar stund­ir með börn­un­um. Ein leið til að rækta sam­ver­una er að mat­reiða og baka sam­an. Í vet­ur munu reglu­lega birt­ast upp­skrift­ir sem eru sér­stak­lega hugsaðar fyr­ir fjöl­skyld­una að dunda sér sam­an við og fram­reiða góða máltíð eða baka ljúf­feng­ar kök­ur.

Fyrsta upp­skrift­in kem­ur úr Frozen mat­reiðslu­bók­inni og er það holla rækju­sal­atið henn­ar Elsu í Frozen sem bragðast mjög vel. Þessi bók hef­ur að geyma 63 girni­leg­ar og ein­stak­lega holl­ar upp­skrift­ir fyr­ir alla fjöl­skyld­una. Hug­mynd­in er að börn­in mat­reiði með for­eldr­um sín­um og eigi þannig gæðastund­ir auk þess að það er svo gam­an fyr­ir börn­in að bjóða upp á og borða mat sem þau hafa sjálf tekið þátt í að út­búa.

Holla rækjusalatið hennar Elsu

Vista Prenta

Holla rækju­sal­atið henn­ar Elsu

  • 500 g rækj­ur
  • 1 msk. jóm­frúarol­ía
  • 1 msk. stein­selja, söxuð
  • 1 msk. basil, saxað
  • 1 límóna, saf­inn úr henni
  • 2 hvít­lauksrif, smátt söxuð
  • ¼ vatns­mel­óna, skor­in í ten­inga
  • 5 dl kletta­sal­at
  • ½ dl furu­hnet­ur, þurrristaðar
  • salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Blandið sam­an í skál, hvít­laukn­um, stein­selj­unni og basil lauf­un­um.
  2. Setjið rækj­urn­ar í aðra skál og hellið ólífu­olí­unni og límónusaf­an­um yfir þær. Hrærið svo krydd­blönd­unni sam­an við.
  3. Steikið rækj­urn­ar á pönnu yfir háum hita í 2–3 mín­út­ur og hrærið stans­laust í þeim á meðan.
  4. Takið rækj­urn­ar af hit­an­um og setjið aft­ur í skál­ina.
  5. Skerið vatns­mel­ón­una í ten­inga.
  6. Takið disk og setjið vatns­mel­ón­una, furu­hnet­urn­ar og kletta­sal­atið á hann.
  7. Setjið rækj­urn­ar ofan á sal­atið og hellið vökv­an­um af rækj­un­um yfir sal­atið eins og dress­ingu.
  8.  Kryddið með salti og pip­ar og berið fal­lega fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert