Hér er á ferðinni heimsfrægur kokteill sem hittir ávallt í mark, en uppskriftina er að finna í bókinni Heimabarinn eftir barþjónana Andra Davíð Pétursson og Ivan Svan Corwasce. Í bókinni er að finna fjölmarga girnilega kokteila og drykki sem eiga sér sögu og þessi er einn þeirra.
Kokteillinn French 75 fékk heimsathygli árið 1930 þegar uppskrift að honum birtist í Savoy-kokteilabókinni. Nafnið French 75 kemur frá öflugri fallbyssu franska hersins sem notuð var í heimsstyrjöldinni og þykir vel við hæfi, þar sem drykkurinn er afar kraftmikill bæði í bragði og áfengismagni.
Fágaður, ferskur drykkur þar sem blandað er saman gini, sítrónu og kampavíni. Við mælum með kampavíni sem hefur þroskað ávaxtabragð og vott af hunangsbragði.
French 75
Skraut:
Aðferð: