Frá og með deginum í dag, 5. september, byrjar Sæta Svínið Gastropub með Helvítis hamborgarann í samstarfi við Ívar Örn Hansen, sem er betur þekktur undir nafninu Helvítiskokkurinn. Helvítiskokkur hefur verið með sjónvarpsþætti auk þess sem hann hefur gefið út matreiðslubók.
„Hér um að ræða geggjaðan nauta-brisket borgara í kartöflubrauði með Helvítis beikoni og Brennivíns kryddsultu, havarti og amerískum osti, bufftómati, súrum gúrkum, brakandi fersku íssalati, majó og pikkluðum rauðum jalapenó. Helvítis hamborgarinn verður borinn fram með frönskum og verðið er 3.890, kr,,“ segir Ívar sem er spenntur fyrir samstarfinu með Sæta Svíninu.
Borgarinn verður í boði fram og með deginum í dag eins og áður sagði og út mánuðinn. Einnig verður hægt að versla Helvítis eldpiparsultur á Sæta Svíninu í september.