Margrét Leifs heilsumarkþjálfi kann svo sannarlega að gera holla og góða sjeika sem gleðja líkama og sál. Þessi hindberjasjeik er einn af hennar uppáhalds og á haustin leggur hún mikið upp úr því að fá sér reglulega holla og góða sjeika. Þessi gefur þér orku út daginn og svo er hann svo bragðgóður.
Hindberjasjeik
Fyrir 2
- 2 dl möndlur, búnar að liggja í bleyti í 8 klukkustundir og skolaðar vel
- 7 dl kalt vatn
- 8-10 döðlur, steinlausar
- 6 dl frosin hindber
- 4 msk. möndlusmjör
Aðferð:
- Setjið möndlurnar, vatnið og döðlurnar í blandarann og blandið saman.
- Bætið frosnum jarðarberjum og möndlusmjöri út í og blandið aftur.
- Hellið í fallegt glas, skreytið með hindberjum og njótið í góðum félagsskap.