Jón Jónsson og Friðrik Dór mættu með eiginkonurnar í bröns

Jón Jónsson, Friðrik Dór Jónsson ásamt eiginkonum sínum, Lísu Hafliðadóttir …
Jón Jónsson, Friðrik Dór Jónsson ásamt eiginkonum sínum, Lísu Hafliðadóttir og Hafdísi Björk Jónsdóttur á Hnoss Bistro. mbl.is/Hákon

Síðustu helgi opnuðu Lucas Kell­er á The Coocoo's Nest og Leif­ur Kol­beins­son á La Prima­vera dyrn­ar í glæ­nýja bröns á Hnoss Bistro sem staðsett­ur er á jarðhæð Hörpu. Þeir hafa sam­einað krafta sína í mat­ar­gerðinni með glæsi­legri út­komu en bröns­ins þeirra er und­ir áhrif­um veit­ingastaðana þeirra beggja og svo sann­ar­lega í þeirra anda.

Marg­ir sæl­kera lands­ins komu að njóta kræs­ing­anna sem slógu í gegn. Það mátti meðal ann­ars sjá einn fræg­asta bröns­rétt­inn sem í boði var á The Coocoo's Nest, „Egg Flor­et­ina með gráðostasósu“ ásamt „Shaks­huka“ og dýrðlegri eggja­böku með kart­öfl­um. Þetta er aðeins brot af því sem í boði er á bröns­hlaðborðinu.

Boðið var upp á kampa­vín­smímósu sem rann ljúft ofan í mat­ar­gesti og ilm­ur angaði um alla Hörpu.

Tveir ást­sæl­ustu kokk­ar lands­ins bjóða upp á bröns

Einnig gátu mat­ar­gesti litið í nýj­ustu mat­reiðslu­bók hjón­anna Íris­ar Ann Sig­urðardótt­ur og Lucas­ar sem ber heitið The Coocoo´s Nest sem var að koma út á dög­un­um en þar er að finna all­ar vin­sæl­ustu upp­skrift­ir Lucas­ar.

Sæl­ker­ar þessa lands hafa ríka ástæðu til að fagna þessu fram­taki þar sem að tveir af ást­sæl­ustu kokk­um lands­ins bjóða upp á það besta úr sinni smiðju þegar kem­ur að bröns­rétt­um.

Ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins leit við og fangaði stemn­ing­una á Hnoss Bistro að þessu til­efni.

Brynja Dan og Jói.
Brynja Dan og Jói. Ljós­mynd/​Jó­hann­es Ásbjörns­son
Íris Ann Sigurðardóttir og Eirný Sigurðurdóttir.
Íris Ann Sig­urðardótt­ir og Eir­ný Sig­urður­dótt­ir. Ljós­mynd/​Jó­hann Ásbjörns­son
Hlaðborðið var hlaðið kræsingum.
Hlaðborðið var hlaðið kræs­ing­um. mbl.is/​Há­kon
Boðið var upp á kampavínsmímósu.
Boðið var upp á kampa­vín­smímósu. mbl.is/​Há­kon
Eggjabökurnar nutu mikilla vinsælda.
Eggja­bök­urn­ar nutu mik­illa vin­sælda. mbl.is/​Há­kon
Rauðrófusalatið.
Rauðróf­u­sal­atið. mbl.is/​Há­kon
Leifur Kolbeinsson og Lucas Keller ánægðir með daginn.
Leif­ur Kol­beins­son og Lucas Kell­er ánægðir með dag­inn. mbl.is/​Há­kon
Matreiðslubókin The Coocoo´s Nest vegleg og kápan táknræn fyrir staðsetningu …
Mat­reiðslu­bók­in The Coocoo´s Nest veg­leg og káp­an tákn­ræn fyr­ir staðsetn­ingu staðar­ins út á Granda á sín­um tíma. mbl.is/​Há­kon
„Egg Florentina með gráðostasósu“.
„Egg Flor­ent­ina með gráðostasósu“. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert