Ostrur, kavíar og dýrindis kampavín

Gleðin var í fyrirrúmi á glæsilegri fagsýningu Innnes á dögunum.
Gleðin var í fyrirrúmi á glæsilegri fagsýningu Innnes á dögunum. Samsett mynd

Innnes í samstarfi við fjölda birgja í mat og víni blésu til glæsilegrar fagsýningar í húsakynnum Innnes í Korngörðum 3 á dögunum. Þetta er í annað skiptið sem að Innnes heldur slíka sýningu en í ár var ákveðið að tjalda öllu til og gera þetta sem glæsilegast.

Á svæðinu voru um 45 fulltrúar frá heimsþekktum framleiðendum frá öllum heimshornum í bæði mat og drykk. Sýningin hófst klukkan 15:00 og var greinilega spenningur fyrir sýningunni þar sem að húsið var heldur fljótt að fyllast.

Um þúsund manns sóttu sýninguna

„Við teljum að í kringum þúsund manns hafi sótt sýninguna okkar og heyrðum við á mörgum að þetta hefði heppnast gríðarlega vel,“ segir Jóhanna Hallgrímsdóttir markaðsstjóri hjá Innnes.

„Svæðinu var skipt upp eftir löndum í bæði mat og drykk, sem dæmi má nefna þá vorum við með franskt svæði þar sem ostrur og kavíar voru paraðar með dýrindis kampavíni, einnig vorum við með ítalskt svæði þar sem Anna Jóna matreiðslumaður töfraði fram dýrindis pasta rétti úr hráefnum frá De Cecco og Parmareggio. Vínbirgjarnir okkar stóðu vaktina og fræddu gesti um sín vín,“ segir Jóhanna.

„Útisvæðið okkar var mjög vinsælt en þar höfðum við sett upp partítjald og stemningin var heldur betur létt og skemmtileg. Þar mátti finna pitsur, tacos, franskar og svo alveg æðislegt kjöt frá birgjunum okkar John Stone og Ekro. Þessu var hægt að skola niður með veigum frá Stellu Artois, Corona, Ölvisholt og búbblum frá Kylie. Svo má ekki gleyma flotta ísvagninum sem var einnig á útisvæðinu.“

Barþjónar frá Reykjavík Cocktails töfruðu fram drykki

Öll rými voru full af kræsingum og gleði. „Inn í sýningareldhúsinu vorum við búin að breyta stemningunni í meira partí þar sem barþjónar frá Reykjavík Cocktails töfruðu meðal annars fram Cointreau Margaritu & Whitley Neill Wiskey Sour. Dóra Júlía stóð vaktina á dj græjunum og sá til þess að stemmingin væri í góðum gír allan tímann. 

Við hjá Innnes erum ótrúlega þakklát öllum þeim sem komu að sýningunni og öllum þeim sem komu til okkar í gær. Við erum rosalega stolt af þessar sýningu og erum spennt að fara undirbúa þá næstu,“ segir Jóhanna að lokum alsæl með hversu vel til tókst.

Ljósmyndari Innnes var á ferðinni og fangaði stemningu, hér fyrir neðan má sjá myndaveisluna.

 

 

Sindri Guðbrandur Sigurðsson og Sigurjón Bragi Geirsson.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson og Sigurjón Bragi Geirsson. Ljósmynd/Innnes
José og Úlfar Finnbjörnsson.
José og Úlfar Finnbjörnsson. Ljósmynd/Innnes
Svanhildur og Una.
Svanhildur og Una. Ljósmynd/Innnes
Dóra Júlía.
Dóra Júlía. Ljósmynd/Innnes
Viktor Sveinsson, Kristján Jens og Hjörleifur Davíðsson.
Viktor Sveinsson, Kristján Jens og Hjörleifur Davíðsson. Ljósmynd/Innnes
Skírnir Valur Márusson.
Skírnir Valur Márusson. Ljósmynd/Innnes
Þórður og Giovanni Vismara.
Þórður og Giovanni Vismara. Ljósmynd/Innnes
Troðfullt hús í gleðinni hjá Innnes.
Troðfullt hús í gleðinni hjá Innnes. Ljósmynd/Innnes
Drykkjarföngin voru á hverju horni.
Drykkjarföngin voru á hverju horni. Ljósmynd/Innnes
Yfirhlaðið var af kræsingum og enginn þyrfti að fara svangur …
Yfirhlaðið var af kræsingum og enginn þyrfti að fara svangur heim. Ljósmynd/Innnes
Heiðrún Mjöll.
Heiðrún Mjöll. Ljósmynd/Innnes
Þórir og Jóhann á Ísvagninum.
Þórir og Jóhann á Ísvagninum. Ljósmynd/Innnes
Ljósmynd/Innnes
Ljósmynd/Innnes
Anna Jóna.
Anna Jóna. Ljósmynd/Innnes
Bari mátti finna víða um völl.
Bari mátti finna víða um völl. Ljósmynd/Innnes
Kaffi og bakkelsi á ítalska vísu.
Kaffi og bakkelsi á ítalska vísu. Ljósmynd/Innnes
Kræsingarnar alls staðar.
Kræsingarnar alls staðar. Ljósmynd/Innnes
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert