Gratíneraður fiskur með papriku og camembert í sparibúningi

Syndsamlega góður gratíneraður fiskréttur með nýjum paprikum og camembert.
Syndsamlega góður gratíneraður fiskréttur með nýjum paprikum og camembert. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Stórfenglega góður fiskréttur sem minnir á brauðrétt sem naut mikilla vinsælda um aldamótin síðustu en þessi fiskréttur er með papriku og camembert. Það má með sanni segja að þetta sé fiskréttur í sparibúningi sem á vel við í upphafi nýrrar vinnuviku. Heiðurinn af þessari uppskrift á Helena Gunnarsdóttir, matarbloggari hjá Eldhúsperlum, en uppskriftina gerði hún fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Gratíneraður fiskur með papriku og camembert

Fyrir 4

  • 800 g ýsa skorin í bita
  • 3 paprikur, skornar smátt
  • ½ blaðlaukur, smátt skorinn
  • 250 ml rjómi
  • ½ askja smurostur með papriku
  • 1 Dala camembert, skorinn í bita
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • ½ grænmetisteningur
  • rifinn gratínostur, góð handfylli

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Skerið ýsuna í bita og saltið aðeins.
  3. Leggið í smurt eldfast mót.
  4. Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
  5. Bræðið saman í potti rjómann, smurostinn og helminginn af camembert-ostinum, ásamt dijon-sinnepi, paprikukryddi og grænmetisteningi.
  6. Smakkið til með svörtum pipar.
  7. Hellið sósunni yfir fiskinn.
  8. Dreifið grænmetinu því næst yfir og toppið með rifnum osti og restinni af camembert-ostinum, skornum í litla teninga.
  9. Bakið í um það bil 20 mínútur, þar til fiskurinn er eldaður í gegn og osturinn gullinbrúnn.
  10. Berið fram með því sem hugurinn girnist, til dæmis fersku salati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert