Mexíkósk súpa að hætti Ellu Stínu

Með mexíkósúpu er gott að bera fram sýrðan rjóma, rifinn …
Með mexíkósúpu er gott að bera fram sýrðan rjóma, rifinn ost og nýbakað brauð. Ferskt kóríander gefur líka gott bragð. Ljósmynd/Ella Stína

Elín Krist­ín Guðmunds­dótt­ir, alla jafna kölluð Ella Stína, elsk­ar að þróa ljúf­fenga veg­an rétti enda er hún að fram­leiða veg­an vör­ur und­ir vörumerk­inu Ella Stína.

Mexí­kósk kjúk­lingasúpa er einn vin­sæl­asti rétt­ur­inn á heim­ili henn­ar og það eru ekki all­ir veg­an í fjöl­skyld­unni. Hún ákvað að prófa að búa til veg­an mexí­kósúpu á dög­un­um og sagði til að mynda ekki syni sín­um, sem er ekki veg­an, frá því að súp­an væri með veg­an kjúlla­bit­um. Súp­an var bor­in fram á borð og viti menn, son­ur­inn borðaði súp­una með bestu lyst og hrósaði mömmu sinni fyr­ir mat­ar­gerðina. Hann fékk síðan að vita sann­leik­ann um kjúlla­bit­ana og hann sagðist ekki hafa fundið mun­inn.

Það er vel hægt að mæla með þess­ari hvort sem þið eruð veg­an eður ei. Nú er bara að prófa og njóta. 

Girnileg súpa.
Girni­leg súpa. Ljós­mynd/​Ella Stína

Mexí­kósk súpa að hætti Ellu Stínu

Vista Prenta

Mexí­kósk súpa að hætti Ellu Stínu

  • 2 væn­ir lauk­ar
  • 8-10 hvít­lauks­bát­ar, pressaðir
  • Olía, eft­ir smekk til að steika lauk­inn úr
  • 800 g kjúlla­bit­ar frá Ellu Stínu
  • 1 pk. rif­inn ost­ur, sterk­ur frá Ellu Stínu
  • 2 dós­ir niðursoðnir tóm­at­ar, líf­ræn­ir í upp­á­haldi
  • 2-3 teng­ing­ar græn­metiskraft­ur, leyst­ir upp í ½ l vatni
  • 2-3 ten­ing­ar kjúk­lingakraft­ur veg­an, leyst­ir upp í  ½ l vatni
  • 1 l tóm­at­safi, t.d. frá Ra­punzel
  • 1 msk. ferskt kórí­and­er, má vera meira
  • 1 tsk. chili duft eða chili flög­ur eft­ir smekk
  • ½ tsk. svart­ur pip­ar gróf­malaður.
  • 1 dós sýrður rjómi frá Qatly

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja lauk­inn í mat­vinnslu­vél og hakkið smátt.
  2. Pressið hvít­lauk­inn og setjið í stór­an pott með olíu og svissið þar til lauk­ur­inn hef­ur tekið á sig gul­an lit.
  3. Bætið síðan öll­um hrá­efn­un­um nema kjúlla­bit­un­um sam­an við og látið malla í um það bil 2 klukku­stund­ir.
  4. Bætið kjúlla­bit­un­um sam­an við í lok­in  og látið bland­ast við í um það bil 15 mín­út­ur áður en súp­an er bor­in fram.
  5. Hrærið reglu­lega í súp­unni meðan hún er að malla.
  6. Smakkið til og hikið ekki við að bæta við krydd­um sem þið hafið dá­læti af.
  7. Berið súp­una fram með rifn­um ost, sýrðum rjóma ásamt fersku kórí­and­er og ný­bökuðu súr­deigs­brauði ef vill.
  8. Upp­lagt að skreyta súp­una þegar hún er bor­in fram með fersku kórí­and­er.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert