Atli Snær keppir á stærstu götubitakeppni í heimi

Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi Komo ásamt fjölskyldu sinni við …
Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi Komo ásamt fjölskyldu sinni við verðlaunaafhendinguna í sumar. Ljósmynd/Aðsend

Komo mun keppa fyr­ir Íslands hönd á evr­ópsku götu­bita verðlaun­un­um, „Europe­an Street Food Aw­ards“, sem er stærsta götu­bita keppni í heimi. Keppn­in sjálf fer fram í Sa­ar­brucken í Þýskalandi dag­ana 4. til 6. októ­ber næst­kom­andi og mun Komo keppa við 18 aðrar Evr­ópu þjóðir um titil­inn „Besti Götu­bit­inn í Evr­ópu“

Í ár sigarði Atli Snær í flokkunum „Besti smábitinn“ og …
Í ár sig­arði Atli Snær í flokk­un­um „Besti smá­bit­inn“ og „Besti græn­met­is­bit­inn“ með „Thai mel­ónu­sal­ati“. Í fyrra sigraði hann flokk­inn „Besti smá­bit­inn“ með „Kor­e­an fried tiger balls“. Ljós­mynd/​Aðsend

Hef­ur unnið til níu verðlauna

Atli Snær mat­reiðslu­meist­ari og eig­andi Komo hef­ur unnið til fjölda verðlauna á Götu­bita­hátíðinni hér heima og hef­ur hann sam­tals unnið til níu verðlauna. Í ár sigraði hann í flokk­un­um „Besti smá­bit­inn“ og „Besti græn­met­is­bit­inn“ með „Thai mel­ónu­sal­ati“ og í fyrra sigraði hann flokk­inn „Besti smá­bit­inn“ með „Kor­e­an fried tiger balls“ en þetta eru ein­mitt rétt­irn­ir sem verða á boðstól­um á hátíðinni.

Áhuga­sam­ir geta fylgst með ferðalag­inu inn á Face­book Komo hér og á In­sta­gram síðunni hér.

Girnilegt.
Girni­legt. Ljós­mynd/​Aðsend
Komo matarvagninn í fullum skrúða.
Komo mat­ar­vagn­inn í full­um skrúða. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert