Wolt sent 100.000 sinnum heim fyrir KFC

Áfanganum var fagnað með því að færa starfsfólkinu á KFC …
Áfanganum var fagnað með því að færa starfsfólkinu á KFC tertu með viðeigandi áletrun. Samsett mynd

Rúmu ári eftir að heimsendingar Wolt hófu starfsemi á Íslandi hefur félagið náð merkilegum áfanga með einum af sínum söluhæstu samstarfsaðilum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Wolt sendi frá sér í gær, fimmtudaginn 18. september.

 KFC ein vinsælasta veitingakeðjan á Íslandi

Í lok ágúst tilkynnti Wolt um afhendingu númer 100.000 frá KFC, einni vinsælustu veitingakeðju landsins, frá því að fyrirtækin hófu samstarf í júlí á síðasta ári. Í dag heimsendir Wolt frá átta KFC veitingastöðum á Íslandi, en vinsælasti staðurinn er í Kópavogi. 

Þessar tölur virðast endurspegla vinsældir steikts kjúklings á landinu, ásamt því að varpa ljósi á þau þægindi og aðgengi sem Wolt býður upp á fyrir íslenska viðskiptavini samkvæmt fréttatilkynningunni frá fyrirtækinu.

Aukið þjónustumöguleikana á markaði

Frá því að Wolt kom á markað á Íslandi hefur fyrirtækið stöðugt aukið þjónustumöguleikana og tryggt að vinsæl vörumerki eins og KFC eru einungis í nokkurra smella fjarlægð fyrir svanga viðskiptavini. Miða við niðurstöður Wolt virðist steiktur kjúklingur vera orðinn nautnamatur margra Íslendinga og samstarf Wolt og KFC hefur auðveldað fólki á Suðvesturhorninu að njóta uppáhaldsmáltíðanna sinna heima, í vinnunni eða á ferðinni. 

Ísland ólíkt hinum Norðurlöndunum

„Íslendingar elska KFC samkvæmt þessu. Ísland er ólíkt hinum Norðurlöndunum, því Íslendingar dýrka steiktan kjúkling meðan hamborgara eru vinsælli á hinum Norðurlöndunum. Á öllum Norðurlöndunum eru hamborgarar í fyrsta sæti, en ekki á Íslandi. Áfanginn er því til marks um mikla eftirspurn eftir kjúklingi KFC og traustið sem Wolt nýtur hjá viðskiptavinum til að keyra uppáhaldsmáltíðirnar þeirra beint heim að dyrum. Við hlökkum til að halda samstarfi okkar áfram með KFC og gera lífið auðveldara og bragðbetra fyrir viðskiptavini okkar um allt land,“ segir Elisabeth Stenersen, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi og Noregi.  

Vinsælasti rétturinn á Íslandi  

Eins og fram hefur komið virðast hamborgarar vera langvinsælasti rétturinn á hinum Norðurlöndunum, en steiktur kjúklingur virðist vera vinsælasti rétturinn á Íslandi samkvæmt niðurstöðum Wolt og þar á eftir koma hamborgarar, pitsur, bakarís matur og asískur matur. 

„Vinsælasta meðlætið frá KFC er kokteilsósan sem þarf að fylgja frönskum á Íslandi. Franskar eru líka mjög vinsælar, en ef við horfum á annað en krydd og meðlæti eru klassísku kjúklingabitarnir vinsælasti staki KFC-rétturinn á matseðlinum, en þar á eftir kemur Boxmaster Zinger máltíðin,“ segir Stenersen.

Mikil ánægja var meðal starfsfólk. með áfangann.
Mikil ánægja var meðal starfsfólk. með áfangann. Ljósmynd/Aðsend

Fimm bestu KFC réttirnir á Wolt:

  • Kjúklingabitar 
  • Boxmaster Zinger málti
  • 10 Kjúklingaleggir- og læri 
  • Boxmaster Zinger máltíð 
  • Kjúklingaborgaramáltíð 

„Við erum ánægð með að hafa náð þessum magnaða áfanga með Wolt. Heimsending hefur gert okkur kleift að koma fræga, steikta kjúklingnum okkar til fleiri viðskiptavina en nokkru sinni fyrr. Það er spennandi að sjá hversu mikið Íslendingar elska KFC og við erum staðráðin í að halda áfram að gera gómsæta kjúklinginn okkar eins aðgengilegan og þægilegan og mögulegt er fyrir alla á Íslandi," segir Gísli Jón Gíslason, upplýsingatæknistjóri KFC á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert