Þegar góða veislu skal gjöra

Valdís Ósk Margrétardóttir lét draum sinn rætast eftir Covid og …
Valdís Ósk Margrétardóttir lét draum sinn rætast eftir Covid og opnaði sína eigin veisluþjónustu, Viðburðarþjónar. Samsett mynd

Þegar stóra veislu skal halda er margt sem vert er að hafa í huga til að allt gangi upp. Eitt af því sem er mik­il­vægt er að vera með góða þjóna og um­fram allt góðan skipu­leggj­anda sem hugs­ar fyr­ir hverju smá­atriði.

Val­dís Ósk Mar­grét­ar­dótt­ir fram­reiðslumaður er ein þeirra sem býður upp á al­hliða veisluþjón­ustu og hef­ur ástríðu fyr­ir starfi sínu. Hún á og rek­ur fyr­ir­tækið Viðburðarþjón­ar og henn­ar dag­ar snú­ast flest­ir um að halda viðburði og gera þá eft­ir­minni­lega.

Hún er bú­sett á Akra­nesi með eig­in­manni sín­um, Sveini Andra Stef­áns­syni og þrem­ur son­um, Al­ex­and­er Helga, Þór­halli Stefáni og Mika­el Mána og hunda­systr­un­um Perlu og Gucci. Þótt hún búi upp á Skaga fer hún sér hún um að halda veisl­ur og viðburði um víðan völl.

Heildarmyndin skiptir sköpun þegar veislu skal halda og hugsa þarf …
Heild­ar­mynd­in skipt­ir sköp­un þegar veislu skal halda og hugsa þarf fyr­ir hverju smá­atriði. Ljós­mynd/​Val­dís Ósk

Miss­ir­inn kveikti í ástríðunni að fagna líf­inu þegar tæki­færi gefst

Val­dís hef­ur unnið við fagið nán­ast all­an sinn starfs­fer­il og má segja að eplið hafa ekki fallið langt frá eik­inni í henn­ar til­viki.

„Ástríðuna á ég ekki langt að sækja þar sem mamma mín, Mar­grét Jó­hanns­dótt­ir, er meist­ari í fag­inu og hef­ur einnig unnið fram­reiðslu og þjón­ustu bróðurpart af sín­um starfs­ferli,“ seg­ir Val­dís.

„Ég hef alla tíð verið mikið fyr­ir viðburðahöld og að gera mér glaðan dag en þrátt fyr­ir ung­an ald­ur hef ég upp­lifað mik­inn missi, sem í raun­inni kveikti enn meira á ástríðunni fyr­ir að fagna líf­inu þegar tæki­færi gefst til. Það að er ekki sjálf­gefið að eiga morg­undag­inn eft­ir, maður get­ur í raun þakka fyr­ir hvern dag sem maður fær.“

Það hef­ur mikið gildi fyr­ir Val­dísi að vera hluti af viðburðum og stór­um dög­um í lífi fólks. „Að aðstoða ein­stak­linga við að gera dag­inn ógleym­an­leg­an og eiga í minn­ing­ar­bank­an­um um ókomna tíð er gef­andi.“

Valdís er framreiðslumeistari og elskar að halda veislur. Hvort sem …
Val­dís er fram­reiðslu­meist­ari og elsk­ar að halda veisl­ur. Hvort sem þær eru stór­ar eða smá­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

Átti lengi þann draum

Aðspurð seg­ir Val­dís að hún hafi lengi átt sér þann draum að vera með sína eig­in veisluþjón­ustu. „Ég hafið gengið með þessa hug­mynd í mag­an­um í mörg ár, en kom henni aldrei í fram­kvæmd vegna anna. Síðan kem­ur Covid, eins all­ir vita, og þá róaðist allt, ekk­ert var um veislu­höld og all­ir voru heima. Þá gat ég farið að skipu­leggja og plana mitt eigið fyr­ir­tæki og láta drauma mína ræt­ast. Viti menn þá varð fyr­ir­tækið mitt, Viðburðaþjón­ar, til og margra ára draum­ur varð loks­ins að veru­leika og fór á flug,“ seg­ir Val­dís með bros á vör.

Þegar Val­dís er spurð út hver gald­ur­inn sé við halda góða veislu sem hitt­ir í mark seg­ir hún að það séu ákveðin grunn­atriði sem vert sé að hafa í huga.

„Núm­er eitt er að hlusta á viðskipta­vin­inn, hvað er það sem stend­ur til og hvað er það sem hann vill  gera og leit­ast eft­ir að fá út viðburðinum. Hlusta hvort hann þægi­legt and­rúms­loft eða orku­mik­inn viðburða eða bara eitt­hvað allt annað. Þegar búið að er að skil­greina hvað hann vill er hægt að byrja að skipu­leggja viðburðinn og aðlaga að hans ósk­um og þörf­um. Það er mjög mik­il­vægt að hlusta vel og fá út úr viðskipta­vin­in­um hvað hann lang­ar virki­lega til þess að gera og fá út úr veisl­unni sem halda skal. Það er lyk­il­atriði.“

„Síðan þarf fag­fólk, nægi­lega marga þjóna miða við gesta­fjölda, skiln­ing á upp­setn­ingu á rým­inu þar sem viðburður­inn á að vera hald­inn, kunn­átta á mat og vín­pör­un er mjög mik­il­væg ásamt áherslu á ýmis smá­atriði sem láta viðburðinn smella sam­an. Það þarf að hugsa um skipu­lagið í heild sinni, hvert smá­atriði get­ur skipt máli,“ seg­ir Val­dís.

Vadls hefur ástríðu fyrir að skipuleggja veislur og þarfagreina með …
Vadls hef­ur ástríðu fyr­ir að skipu­leggja veisl­ur og þarfagreina með viðskipta­vin­in­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Skipu­lagn­ing og þarfagrein­ing með viðskipta­vin­in­um

Þegar Val­dís er spurð hvað fyr­ir­tækið henn­ar bjóði upp á þegar veislu skal halda seg­ir hún það vera nán­ast allt sem þarf til. „Það er ým­is­legt sem við bjóðum upp á. Fyrst og fremst aðstoð við skipu­lagn­ingu, þarfagrein­ingu með viðskipta­vin­in­um til að fá sem best­an skiln­ing að hverju verið er að leita eft­ir, þegar það er klárt þá get­um við haf­ist handa. Það get­um við skipu­lagt borðbúnað, skreyt­ing­ar, eins og til dæm­is hvort það verða blóma­skreyt­ing­ar eða annað skraut. Við mæt­um síðan á staðinn og sjá­um um gest­ina okk­ar frá upp­hafi til enda. Leggj­um áherslu á að vera fag­leg, já­kvæð og til­bú­in til að aðstoða við at­vik sem geta koma upp, svo fátt sé nefnt,“ seg­ir Val­dís sposk á svip og bæt­ir við að ým­is­legt geti komið upp sem verði að leysa. „Þá skipt­ir máli að vera viðbragðssnjall og leysa mál­in.“

„Það þarf að vera ákveðið mennt­un­arstig til að hafa skiln­ing á starf­inu, kunn­áttu til að fram­kvæma og reynsl­una til að standa vakt­ina. Reynsl­an skipt­ir ávallt máli og styrk­ir alla í starfi. Við erum með mjög  fjöl­breytt teymi sem að er að sjálf­sögðu hjartað í fyr­ir­tæk­inu og ekk­ert væri hægt að gera án frá­bæra starfs­fólks­ins okk­ar. Hjá Viðburðaþjón­um starfa menntað fram­reiðslu­fólk og meist­ar­ar sem og fólk í námi og aðstoðarfólk,“ seg­ir Val­dís og seg­ir það vera gulls ígildi að vera með gott starfsteymi.

Klæðnaður er eitt af því sem skiptir miklu máli að …
Klæðnaður er eitt af því sem skipt­ir miklu máli að huga við þjón­ustu­störf. Ljós­mynd/​Aðsend

Skapa ákveðna ímynd út á við

Þegar kem­ur að klæðnaði þjóna seg­ir Val­dís það skipta miklu máli að vera ávallt með snyrti­legt og vel merkt starfs­fólk. „Það skapa ákveðna ímynd út á við og aðstoðar jafn­framt gest­um að sjá hverj­ir eru til staðar þegar aðstoð vant­ar. Starfs­fólkið á að vera fyr­ir­mynd í veisl­unni hvað varðar snyrti­leg­heit, út­geisl­un og fram­komu.“

Fyr­ir­tækið henn­ar Val­dís­ar hef­ur blómstrað síðan hún ýti því úr vör. „Þetta hef­ur verið draumi lík­ast og viðtök­urn­ar farið fram úr mín­um björt­ustu von­um. Í fyrra vor­um við með 164 viðburði og núna upp­bókuð til árs­ins 2025. Kom­andi ár er líka farið vel af stað, það líka gam­an að segja frá að við höf­um fengið að taka þátt í alls kon­ar ólík­um viðburðum, allt frá 5 manna veisl­um upp í 1400 manna sitj­andi veisl­ur. Öll verk­efni eru ólík og ein­stök á sinn hátt, sem er það skemmti­leg­asta við þetta allt sam­an. Sér­stak­lega þegar gest­gjaf­inn leyf­ir sín­um per­sónu­ein­kenn­um að blómstra og flæða í veisl­unni.“

Að lok­um hver er gald­ur­inn við að halda góða veislu skal gjöra?

„Gald­ur­inn bak við þegar góða veislu eða viðburð skal gjöra eru marg­ir þætt­ir spila inn í og þurfa að vinna í sam­an, í grun­inn er það þarfagrein­ing með viðskipta­vin­in­um og framúrsk­ar­andi starfs­fólk sem er til­búið að bregðast við alls kon­ar aðstæðum, sem geta komið upp, með bros á vör og til­búið að bregðast við hverju sem er. Starfs­fólkið er lyk­il­inn og gleðin.“ 

Þegar góða veislu skal gjöra segir Valdís galdur bak við …
Þegar góða veislu skal gjöra seg­ir Val­dís gald­ur bak við það vera starfs­fólkið. Að vera með gott starfs­fólk sé gulls ígildi. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert