Kjötbollur í brúnni sósu á gamla mátann

Kjötbollur í brúnni sósu gerðar á gamla mátann bornar fram …
Kjötbollur í brúnni sósu gerðar á gamla mátann bornar fram með kartöflumús. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hver man ekki eftir því að hafa fengið kjötbollur í brúnni sósu, gerðar úr kjötfarsi í bernsku? Margir elskuðu þennan rétt og finnst það hrein nostalgía að fá þessar kjötbollur.

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar gerði könnun á dögunum hvort fylgjendur hennar myndu vilja fá uppskrift af gamaldagskjötbollu til að njóta.

„Ég gerði svona bollur í haust og setti inn smá könnun á Instagram hjá mér hvort fólk kynni almennt að útbúa slíkar eða ekki. Um 70% sögðust kunna þetta en hátt í 30% sögðust það ekki og væru til í að vita hvernig þetta væri gert,“ segir Berglind og ákvað að svara kallinu og deila með fylgjendum sínu þessari uppskrift.

Hér kemur uppskriftin hennar af kjötbollunum í brúnni sósu ásamt kartöflumús fyrir þá sem vilja prófa og fara aftur til fortíðar.

Kjötbollur í brúnni sósu og kartöflumús

Kjötbollur í brúnni sósu

  • 700 g nýtt kjötfars
  • 50 g smjör
  • 300 ml vatn
  • 300 ml rjómi
  • 2 msk. fljótandi nautakraftur
  • 3-4 msk. maízenamjöl/sósuþykkjari
  • Sósulitur eftir smekk
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið við meðalháan hita.
  2. Baðið matskeið í smjöri og mótið með henni kjötbollur úr farsinu, bætið alltaf smjöri á hana á milli til að farsið festist ekki við.
  3. Steikið bollurnar vel á öllum hliðum.
  4. Hellið þá vatni, rjóma og fljótandi krafti saman við og þykkið með maízenamjöli.
  5. Litið með sósulit sé þess óskað og kryddið aðeins með salti og pipar eftir smekk.
  6. Leyfið bollunum að malla aðeins í sósunni á meðan þið klárið kartöflumús og takið til annað meðlæti.

Kartöflumús

  • 1 kg bökunarkartöflur
  • 40 g smjör
  • 150 ml nýmjólk
  • 2 msk. sykur
  • 1 tsk. salt

Aðferð:

  1. Flysjið og skerið kartöflurnar niður í bita til að flýta fyrir suðunni.
  2. Sjóðið þar til þær mýkjast og setjið þá yfir í hrærivél með K-inu eða í skál og notið kartöflustappara.
  3. Bætið smjöri, mjólk, sykri og salti saman við og blandið saman þar til kartöflumús hefur myndast.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert