Öðruvísi blómkálssúpa í haustlitum

Blómkálssúpan hennar Helgu Möggu er fagurgul á lit líkt og …
Blómkálssúpan hennar Helgu Möggu er fagurgul á lit líkt og laufblöðin sem falla af trjánum á haustin. Samsett mynd

Hefð er fyr­ir því að súp­ur njóti vin­sælda meðal lands­manna á haust­in, sér­stak­lega þegar ferskt ís­lenskt græn­meti flæðir í versl­an­ir.

Helga Magga heils­markþjálfi og mat­ar­blogg­ari er ein þeirra sem elsk­ar súp­ur á haust­in.

„Það sem ég elska við súp­ur er hvað það er ein­falt að búa þær til, græn­metið þarf bara að skera gróf­lega niður en svo finnst mér alltaf best að mauka súp­ur með töfra­sprota í lok­in svo þær verði silkimjúk­ar. Þannig er líka best að gefa börn­um súpu,“ seg­ir Helga Magga.

Þessi upp­skrift af blóm­kálssúpu kem­ur úr smiðju Helgu Möggu, en súp­an er með ristuðum kjúk­linga­baun­um sem gott er að setja ofan á hvern disk þegar súp­an er bor­in fram.

Sjáið Helgu Möggu út­búa blóm­kálssúp­una sína hér fyr­ir neðan:

Öðruvísi blómkálssúpa í haustlitum

Vista Prenta

Öðru­vísi blóm­kálssúpa

  • 700 g blóm­káls­haus
  • 1 dós kjúk­linga­baun­ir
  • 2 - 3 gul­ræt­ur
  • 1 lauk­ur
  • 3 hvít­lauksrif
  • olía
  • 2 tsk. better than bouillon kjúk­lingakraft­ur
  • 1 l vatn
  • 500 ml mat­reiðslur­jómi
  • 1 tsk. túr­merik krydd frá Krydd­hús­inu
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • chili krydd, sítr­ónupip­ar og hvít­laukskrydd eft­ir smekk

Skraut ofan á í lok­in

  • Ferskt dill og sprett­ur frá Vaxa

Aðferð:

  1. Hellið vatn­inu af kjúk­linga­baun­un­um og skolið,  gott að taka hýðið af þeim en það er smekks­atriði.
  2. Setjið baun­irn­ar í skál og þerrið þær ör­lítið með papp­ír.
  3. Hellið olíu á baun­irn­ar og kryddið þær með hvít­laukskryddi, chili og sítr­ónupip­ar.
  4. Setjið kjúk­linga­baun­irn­ar á bök­un­ar­papp­ír og bakið við 180°C hita í 35 mín­út­ur.
  5. Skerið blóm­kálið í bita og setjið á bök­un­ar­plötu, hellið olíu yfir og kryddið með salti, pip­ar og hvít­lauk.
  6. Setjið blóm­kálið inn í ofn­inn með kjúk­linga­baun­un­um og bakið í um það bil 30 mín­út­ur.
  7. Skerið lauk­inn, gul­ræt­urn­ar og hvít­lauk­inn í bita og steikið upp úr olíu í potti í nokkr­ar mín­út­ur.
  8. Kryddið til með salti og pip­ar eft­ir smekk. Setjið túr­merik út í pott­inn ásamt vatn­inu og kjúk­lingakraft­in­um.
  9. Það má einnig nota græn­metiskraft í stað kjúk­lingakrafts.
  10. Setjið blóm­kálið út í pott­inn þegar það er til­búið úr ofn­in­um.
  11. Maukið súp­una með töfra­sprota í lok­in og blandið mat­reiðslur­jóm­an­um sam­an við maukuðu súp­una.
  12. Berið súp­una bor­in fram með ristuðu kjúk­linga­baun­un­um og súr­deigs­brauði.
  13. Svo er afar fal­legt að setja smá grænt ofan á hvern disk, Helga Magga var með ferskt dill og sprett­ur frá Vaxa.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert