Ein með öllu ódýrust vestur á Tálknafirði

Jóhanna Eyrún Guðnadóttr og Ásgeirs Jónsson kaupmenn í matvöruversluninni Hjá …
Jóhanna Eyrún Guðnadóttr og Ásgeirs Jónsson kaupmenn í matvöruversluninni Hjá Jóhönnu, en þangað sækja þorpsbúar matvörur og aðrar nauðsynjar. Ljósmynd7Guðlaugur Albertsson

Á Tálknafirði er að finna ódýr­ustu pyls­una en þar er hægt að fá eina með öllu fyr­ir 350 kr. 

„Ein með öllu er þjóðarrétt­ur Íslend­inga og nán­ast veisla í huga margra. Ómögu­legt er að spilla gleði þeirra og því höf­um við haldið prísn­um á pyls­un­um óbreytt­um í sjö ár; 350 krón­ur, þær ódýr­ustu á Íslandi segja sum­ir og það eru frá­bær meðmæli,“ seg­ir Jó­hanna Eyrún Guðna­dótt­ir kaupmaður á Tálknafirði. Þar í bæ reka þau Ásgeir Jóns­son eig­inmaður henn­ar mat­vöru­versl­un­ina Hjá Jó­hönnu, þar sem fólk get­ur gengið að öll­um helstu nauðsynj­um vís­um og raun­ar fleiru. Þar verður að halda til haga að við af­greiðslu­borðið eru pott­ar tveir; í öðrum eru pyls­urn­ar soðnar og hinn held­ur brauðinu heitu.

Íslend­ing­ar vilja og velja

„Íslend­ing­ar vilja og velja pyls­ur,“ seg­ir Ásgeir Jóns­son. „Pylsu­sal­an eru svo sem eng­in und­ir­staða í rekstr­in­um en mik­il­vægt að hafa þetta í boði. Sam­fé­lags­leg skylda gæti ein­hver sagt. Því selj­um við þetta jafn ódýrt og mögu­legt er og verðið hef­ur raun­ar verið hið sama al­veg síðan við fór­um út í þenn­an versl­un­ar­rekst­ur fyr­ir sjö árum. Ég veit svo sem ekki hve lengi við höld­um út að bjóða pyls­urn­ar svona ódýr­ar; að ein­hverju leyti er þetta til gam­ans gert.“

Á Íslandi mall­ar verðbólga og vext­ir eru í hæstu hæðum. Af þeim sök­um gagn­rýna marg­ir Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóra, til dæm­is al­nafni hans, kaupmaður­inn á Tálknafirði. „Hann nafni minn ætti að sýna þess­ari viðleitni okk­ar all­an skiln­ing. Ef kaup­menn í land­inu héldu sig al­mennt á því róli í verðlagn­ingu sem við ger­um væri staða efna­hags­mála á Íslandi betri,“ seg­ir Ásgeir.

Verði er stillt í hóf, á pylsun og öðru því …
Verði er stillt í hóf, á pyls­un og öðru því sem í boði er.

Mik­il­væg mat­vöru­búð

Mat­vöru­búð er mik­il­væg starf­semi í hverju sam­fé­lagi, svo sem á Tálknafirði þar sem búa um 250 manns. „Við hjón­in fór­um út í þessa starf­semi þegar kaupmaður­inn sem fyr­ir var ákvað að hætta og til stóð að loka búðinni. Okk­ur fannst ómögu­legt að þurfa að aka í næstu þorp til þess að fá helstu nauðsynj­ar og tók­um því við þess­um rekstri, sem hef­ur gengið ljóm­andi vel. Vöru­verð hjá okk­ur er vel sam­keppn­is­hæft við aðra, að ekki sé talað um pyls­urn­ar ódýru sem Tálkn­f­irðing­ar gera góð skil,“ seg­ir Jó­hanna Eyrún að síðustu.

Ein með öllu í brauði og bréfi með sólgulu remúlaði.
Ein með öllu í brauði og bréfi með sólgulu remúlaði. mbl.is/Þ​orkell Þorkels­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert