Hér er á ferðinni ekta haustsalat, blómkálið gerir það svo haustlegt. Nú er brakandi uppskera af nýju grænmeti í verslunum og þá er lag að nýta það í salatgerðina. Samsetningin á hráefninu í þessu salati er fullkomin fyrir þennan árstíma. Þetta er léttur og góður réttur eða meðlæti sem passar til að mynda með kjöti. Hér mætast döðlur, blómkál, möndlur og ljúffeng dressing sem bindur allt saman.