Mói skálar funheit og nýjasta hönnun Heklu

Hekla Björk Guðmundsdóttir listakona og hönnuður er búin að frumsýna …
Hekla Björk Guðmundsdóttir listakona og hönnuður er búin að frumsýna nýju línuna sína sem ber heitið Mói skálar. Samsett mynd/mbl.is/Kristinn Magnússon

Ný hönn­un hef­ur litið dags­ins ljós hjá Heklu Björk Guðmunds­dótt­ur lista­konu og hönnuði, en hönn­un henn­ar und­ir merk­inu Heklaislandia hef­ur notið mik­illa vin­sælda og löngu orðin þekkt hér á landi og víðar. Mói skál­ar eru glæ­ný hönn­un og eru í anda þess sem hún hef­ur verið að hanna gegn­um tíðina.

Fyrstu vör­urn­ar henn­ar komu árið 1996 síðan þá hef­ur bæst jafnt og þétt við fal­lega hönn­un henn­ar, sem Íslend­ing­ar hafa fengið að njóta allt árið um kring. Hún sæk­ir inn­blást­ur í villta flóru, dýra­líf og nátt­úru Íslands sem skil­ar sér vel í hönn­un henn­ar fyr­ir hverja árstíð og líka þegar það kem­ur að jól­un­um.

Hér er hvít keramikskál með loki með móa og kind …
Hér er hvít kera­mik­skál með loki með móa og kind á toppn­um sem má segja að hafa verið fyrsta hug­mynd Heklu á út­liti skál­ar­inn­ar. Ljós­mynd/​Aðsend

Inn­blástur­inn al­veg frá ár­inu 1996

„Inn­blástur­inn af Móa skál­un­um er al­veg frá ár­inu 1996 þegar ég mótaði kera­mik­skál með loki sem var með móa og kind á toppn­um. Það tek­ur mig alltaf tíma að koma hug­mynd í fram­kvæmd en þessi hug­mynd tók extra lang­an tíma,“ seg­ir Hekla og bros­ir.

„Mói er nátt­úru­und­ur sem ég hef heill­ast af allt frá barnæsku og kem­ur hann oft fram í mál­verk­um mín­um, en nú hef ég sett hann í þrívídd­ar form í glæ­nýrri hönn­un minni, Mói skál­ar.“

Mó­inn er ein­faldaður og stíl­færður á ein­stak­an fal­leg­an hátt, en skál­arn­ar koma bæði ein­göngu með móa á loki og móa loki með kind, lóu eða krumma á toppn­um. Þær koma í þrem­ur lit­um hvít­ar, svart­ar og brún­ar.

Skál­arn­ar er hægt að nota á ýms­an hátt, til að geyma bestu kon­fekt­mol­ana, lít­il leynd­ar­mál, góðar minn­ing­ar, við kaffi­könn­una, lyklakipp­una eða bara til að fegra eld­húsið og heim­ilið. 

Skálarnar koma í þrem litum, hvítar, svartar og brúnar.
Skál­arn­ar koma í þrem lit­um, hvít­ar, svart­ar og brún­ar. Ljós­mynd/​Aðsend
Móa skálarnar má líka fá í tveimur stærðum. Kindin, krumminn …
Móa skál­arn­ar má líka fá í tveim­ur stærðum. Kind­in, krumm­inn og lóan hafa verið áber­andi í hönn­un Heklu. Ljós­mynd/​Aðsend
Krumminn fær líka að njóta sín.
Krumm­inn fær líka að njóta sín. Ljós­mynd/​Aðsend
Skálarnar hafa skírskotun í íslenska náttúru, móann.
Skál­arn­ar hafa skír­skot­un í ís­lenska nátt­úru, mó­ann. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert