Tilnefndur sem besti viðburðarhaldarinn í Evrópu

Róbert Aron Magnússon segir það mikinn heiður Götubitann að vera …
Róbert Aron Magnússon segir það mikinn heiður Götubitann að vera tilnefndur sem „Besti viðburðarhaldarinn í Evrópu“. Samsett mynd

Götu­bit­inn – Reykja­vík Street Food hef­ur verið til­nefnd­ur sem „Besti viðburðar­hald­ar­inn í Evr­ópu“ á Europe­an Street Food Aw­ards, eða „Best street food event org­aniser in Europe“. Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Götu­bit­an­um - Reykja­vik Street Food.

Mikið fjölmenni hefur mætt á Götubitann undanfarin ár og fjöldi …
Mikið fjöl­menni hef­ur mætt á Götu­bit­ann und­an­far­in ár og fjöldi mat­ar­vagna eykst með hverju ár­inu sem líður. Ljós­mynd/​Aðsend

„Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt og því er mik­ill heiður fyr­ir Götu­bit­ann og Götu­bita­hátíðina að fá þessa til­nefn­ingu þar sem það eru tugi hátíða haldn­ar víðs veg­ar um Evr­ópu á ári hverju,“ seg­ir Ró­bert Aron Magnús­son fram­kvæmda­stjóri Götu­bitans ehf.

Atli Snær hjá Komo mun einnig keppa í Þýskalandi um …
Atli Snær hjá Komo mun einnig keppa í Þýskalandi um titil­inn „Besti götu­bit­inn í Evr­ópu.“. Ljós­mynd/​Aðsend

Ra­f­ræn kosn­ing er þegar haf­in og geta all­ir tekið þátt sem vilja. Úrslit verða síðan til­kynnt dag­ana 6-8. októ­ber næst­kom­andi á Europe­an Street Food Aw­ards hátíðinni sem hald­in verður í Sa­ar­brucken í Þýskalandi en eins og áður hef­ur komið fram þá mun Komo keppa fyr­ir Íslands hönd um „Besti Götu­bit­inn í Evr­ópu“.

Kosn­ing er opin öll­um og  er hún nú í full­um gangi og vill Ró­bert hvetja alla að kjósa „Götu­bit­ann - Reykja­vík Street Food“. Sjá hér.

Einnig er hægt að fara inn á eft­ir­far­andi vefsíðu hér og velja hlekk þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert