Færustu matreiðslumenn Íslands bjóða til glæsilegrar matarupplifunnar

Færustu matreiðslumenn landsins bjóða upp á stjörnumatseðil til styrktar næstu …
Færustu matreiðslumenn landsins bjóða upp á stjörnumatseðil til styrktar næstu Bocuse d’Or keppni þar sem Sindri Guðbrandur Sigurðsson matreiðslumaður og Kokkur ársins 2023 mun keppa fyrir Íslands hönd. Samsett mynd

Fær­ustu mat­reiðslu­menn lands­ins bjóða til glæsi­legr­ar mat­ar­upp­lif­unn­ar á veit­ingastaðnum Ei­ríks­dótt­ir í Grósku þann 12. Októ­ber næst­kom­andi. Þeir eru bún­ir að setja sam­an stjörnu­mat­seðil sem er eng­um lík­ur og mat­ar­gest­ir eiga von á mat­ar­upp­lif­un sem mun snerta öll skiln­ing­ar­vit­in.

Inn­an teym­is­ins eru fyrr­ver­andi kepp­end­ur stærstu mat­reiðslu­keppni í heimi Bocu­se d’Or sem verður hald­in næst í Lyon í Frakklandi í janú­ar á næsta ári

Veisl­an er ein­mitt til styrkt­ar næstu Bocu­se d’Or keppni þar sem Sindri Guðbrand­ur Sig­urðsson mat­reiðslumaður og Kokk­ur árs­ins 2023 mun keppa fyr­ir Íslands hönd.

Bocu­se d’Or er allra virt­asta mat­reiðslu­keppni sem hald­in er í heim­in­um og verið hald­in síðan 1987 í Lyon Frakklandi, og kom­ast færri þjóðir að enn vilja. 24 þjóðir fá keppn­is­rétt eft­ir að hafa kom­ist í gegn úr for­keppni í sinni heims­álfu. Bocu­se d’Or er kölluð hin eina sanna heims­meist­ara­keppni í mat­reiðslu.

Árang­ur Íslands

Íslend­ing­ar hafa verið með frá ár­inu 1999 og er ár­ang­ur þeirra væg­ast sagt glæsi­leg­ur og sýn­ir töl­fræðin að Íslend­ing­ar eru í hópi 6 bestu þjóða í heim­in­um í mat­reiðslu og er óhætt að krefjast ár­ang­urs í kom­andi keppn­um.

Árið 1999 fór Sturla Birg­is­son sem frum­kvöðull fyr­ir Íslands hönd og náði þar fimmta sæt­inu sem er glæsi­leg­ur ár­ang­ur í fyrstu keppni sem Íslend­ing­ar eru með og ruddi þar veg­inn fyr­ir næstu kepp­end­ur með reynslu og þekk­ingu á Bocu­se d’Or.

Há­kon Már Örvars­son fór næst­ur árið 2001 og var í þriðja sæti. Þann ár­ang­ur jafnaði svo Vikt­or Örn Andrés­son árið 2017 tíu árum eft­ir að hafa verið aðstoðarmaður hjá Friðgeir Inga Ei­ríks­syni árið 2007.

Björg­vin Mýr­dal, Ragn­ar Ómars­son, Þrá­inn Freyr Vig­fús­son, Sig­urður Helga­son, Sig­urður Lauf­dal, Bjarni Siguróli, Sig­ur­jón Bragi Geirs­son, eru all­ir framúrsk­ar­andi kokk­ar sem einnig hafa keppt fyr­ir Íslands hönd í þess­ari allra sterk­ustu mat­reiðslu keppni heims

Hvað Bocu­se d´Or hef­ur gert fyr­ir Ísland?

Eft­ir­tek­arverður ár­ang­ur þess­ar­ar litlu þjóðar í þess­ari keppni varð til þess að Michel­in Gui­de opnaði loks­ins á Ísland. Það ligg­ur fyr­ir að með komu Michel­in Gui­de til Íslands hef­ur allt ann­ar mark­hóp­ur efnaðra ferðamanna bæst við í flór­una í ferðaþjón­ust­unni.

Þeir mat­reiðslu­menn sem keppn­inni tengj­ast á Íslandi hafa myndað ákveðið hryggj­ar­stykki í fag­mennsku veit­inga­geir­ans sem og í kennslu til ann­ara í fag­inu. Aðeins bestu mat­reiðslu­menn á Íslandi hafa átt mögu­leika á að taka þátt í keppn­inni og velja með sér mest framúrsk­ar­andi aðstoðar­menn­ina sem koma svo út á vinnu­markaðinn sem frá­bær­ir fag­menn.

Hvað þarf til?

„Mikla frum­kvöðla hugs­un, mikla vinnu, kjark og þor til að fara út í svona keppni því ferlið í hvert skipti eru tvö ár. Enda­laus­ar æf­ing­ar, mikið hrá­efni, hönn­un, sér­smíði er eitt­hvað sem kall­ar á mikla fjár­öfl­un þó að all­ir ein­stak­ling­ar sem að þessu koma séu í sjálf­boðavinnu,“ seg­ir Friðgeir Ingi Ei­ríks­son einn eig­anda veit­ingastaðar­ins Ei­ríks­dótt­ir og þeirra sem stend­ur að styrkt­ar­sam­kom­unni.

Bocu­se Aka­demía Íslands safn­ar styrkj­um og tek­ur að sér ýmis verk­efni til að standa straum af heild­ar reikn­ingn­um á ferl­inu í hvert skipti eða um 30 milj­ón­ir. Nauðsyn­legt er að fá hjálp frá stjórn­völd­um til að gera þetta allt rétt og hef­ur það sann­ast að það hef­ur skilað sér marg­fallt til baka,“ seg­ir Friðgeir að lok­um og von­ar að það verði hús­fyll­ir þetta kvöld.

Hægt er að bóka borð á viðburðinn gegn­um veit­ingastaðinn Ei­ríks­dótt­ir í Grósku.

Hér má sjá matseðilinn sem í boðið verður. Húsið mun …
Hér má sjá mat­seðil­inn sem í boðið verður. Húsið mun opna klukk­an 19:00 og kvöldið hefst með for­drykk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert