Helga Magga bjó til hollt túnfisksalat

Áhrifavaldurinn og næringarþjálfarinn Helga Magga var með skemmtilegt matreiðslunámskeið í …
Áhrifavaldurinn og næringarþjálfarinn Helga Magga var með skemmtilegt matreiðslunámskeið í Hagkaup Smáralind í tilefni að heilsudögum. Samsett mynd

„Vítamín, prótein, grænmeti, hollur og fjölbreyttur matur og listinn er langur enda eru yfir þúsund vörur á sérstöku tilboði í öllum verslunum Hagkaups 19.-29. september. Þessir skemmtilegu dagar eru nýttir í að vekja áherslu á því frábæra úrvali af vörum sem í boði eru í verslunum Hagkaups og að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi,“ segir Lilja Björg Gísladóttir markaðsfulltrúi Hagkaups í fréttatilkynningu. 

Helga Magga gerði til að mynda girnilegan ostakökuhafragraut.
Helga Magga gerði til að mynda girnilegan ostakökuhafragraut. Ljósmynd/Blik Studio

Gómsætar veitingar á hollan og einfaldan hátt

„Áhrifavaldurinn og næringarþjálfarinn Helga Magga var með skemmtilegt matreiðslunámskeið í Hagkaup Smáralind í boði Hagkaups og MS. Á því námskeiði kenndi Helga Magga gestum að reiða fram hinar gómsætustu veitingar á hollan og einfaldan hátt,“ segir Lilja Björg.

Meðal annars bjó Helga Magga til túnfisksalat með grískri jógúrt og kotasælu, kotasælu kex og virkilega girnilegan ostakökuhafragraut.

„Helga Magga hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum síðustu ár og þar hafa einfaldar og hollar uppskriftir hennar komið sterkar inn. Viðstaddir voru virkilega ánægð með námskeiðið og fengu að því loknu að bragða á ljúffengum kræsingum,“ segir Lilja Björg og bæti við að gaman væri a sjá hve margir hafi áhuga að mæta á námskeið sem þessi.

Fjölmargir sóttu námskeiðið með Helgu Möggu.
Fjölmargir sóttu námskeiðið með Helgu Möggu. Ljósmynd/Blik Studio

Bjargráð fyrir breytingaskeiðið

Annar viðburður var samstarfsverkefni Hagkaups og Smáralindar. En tvíeykið bauð upp á fyrirlestur um breytingaskeiðið með Halldóru Skúladóttur. Halldóra fór þar yfir hinar ýmsu hliðar á breytingaskeiðinu, bjargráð, einkenni og svo margt fleira sem var virkilega fræðandi.

Boðið var upp á ljúffengar kræsingar sem hittu í mark.
Boðið var upp á ljúffengar kræsingar sem hittu í mark. Ljósmynd/Blik Studio
Helga Magga er sniðugari en flestir að búa til einfalda …
Helga Magga er sniðugari en flestir að búa til einfalda og holla rétti á augabragði. Ljósmynd/Blik Studio
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert