Frumlegasta fiskisúpan með rófum og chili

Ein frumlegasta haustsúpan með fisk, rófum og chili.
Ein frumlegasta haustsúpan með fisk, rófum og chili. Ljósmynd/Helga Mogensen

Haustið kallar á matarmikla súpu með nýuppteknu grænmeti. Hér er á ferð ein frumlegasta haustsúpa sem fyrirfinnst - fiskisúpa með rófum og chili. Uppskriftin er sterk og rífur í. 

Hún kemur frá Helgu Mogensen, sem ekki bara matgæðingur heldur sérfræðingur í grænmetisréttum. Uppskriftina útbjó hún fyrir uppskriftarvef Sölufélags garðyrkjubænda. 

Þessi kemur á óvart og mér hefði aldrei dottið í hug að setja rófur í fiskisúpu.

Fiskisúpa með rófum og chili

  • 400 g fiskur, þorskur
  • 500 ml fisksoð
  • Gróft salt eftir smekk
  • Hvítur pipar eftir smekk
  • Chiliduft á hnífsoddi
  • 1 tsk. karrí
  • 1 stk. hvítlaukur, saxaður smátt eða marinn
  • 2 stk. laukar, skorinn smátt
  • 3 stk. rófur
  • 1 msk. dill
  • 1 msk. fersk steinselja, söxuð
  • Vorlaukur, eftir smekk
  • 2 stk. lárviðarlauf

Aðferð:

  1. Hægt að kaupa tilbúinn fljótandi fiskkraft í verslunum. Hlutföll um það bil 5 msk. í 1 l eða fiskkraft teninga og sjóða í vatni.
  2. Byrjið á því að mýkja laukinn og hvítlaukinn í ólífuolíu ásamt smá salti.
  3. Hrærið kryddum saman við áður en fiskisoðinu og vatni er bætt út í.
  4. Skrælið rófurnar og skerið í litla bita og bætið saman við og látið sjóða í 15 mínútur eða þar til þær eru orðnar meyrar.
  5. Lækkið undir og þeytið súpuna gróflega með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
  6. Mögulega þarf að bragðbæta súpuna ásamt því að setja örlítið af sítrónusafa til að draga fram ferskleika hennar. 
  7. Skerið fiskinn í smáa bita og setjið út í sjóðandi heita súpuna rétt undir lokin ásamt smátt söxuðu dilli og steinselju.
  8. Berið fram með því sem hugurinn girnist, til dæmis með nýbökuðu brauði og þeyttu smjöri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert