Svífur á bleiku skýi með spretturnar

Birna Hrönn Gunnlaugsdóttir viðskiptastjóri hjá VAXA, Hátækni, er í skýjunum …
Birna Hrönn Gunnlaugsdóttir viðskiptastjóri hjá VAXA, Hátækni, er í skýjunum með að geta loksins boðið upp á sprettur í matvöruverslunum. mbl.is/Karítas

Birna Hrönn Gunn­laugs­dótt­ir viðskipta­stjóri VAXA er mik­il sal­at­kona sem kann að meta kryd­d­jurtir og sprett­ur. Hún vill hafa mikið að gera og elsk­ar fátt meira en að tak­ast á við áskor­an­ir.

Síðustu vik­ur og mánuði hef­ur hún staðið í ströngu við að breikka og þróa vöru­úr­valið til að koma til móts við ósk­ir viðskipta­vina.

„Það skemmti­leg­asta sem ég geri er að gera eitt­hvað nýtt og tak­ast á við ný og krefj­andi verk­efni. All­ir sem þekkja mig vita það að þegar það er mikið að gera hjá mér er ég lang skemmti­leg­ust. Það er ótrú­lega mikið nýtt og spenn­andi að ger­ast hjá okk­ur og er hægt að segja að maður svífi um að bleiku skýi þessa dag­ana, sér­stak­lega þar sem sprett­urn­ar eru á leið í versl­an­ir,“ seg­ir Birna og bros­ir breitt. 

Dillið og mynt­an nýj­ung

„Dill og mynta eru nýj­ung hjá okk­ur í kryd­d­jurt­um. Dillið er til dæm­is frá­bært á kart­öfl­urn­ar, egg­in og í sós­una og mynt­an í kokteil­inn, sal­atið eða græn­an þeyt­ing. Það get­ur verið erfitt að nálg­ast ís­lensk­ar kryd­d­jurtir all­an árs­ins hring svo við erum stolt af því að bjóða ís­lensk­um neyt­end­um upp á fersk­ar ís­lensk­ar kryd­d­jurtir all­an árs­ins hring, sama hvernig viðrar. Við bætt­um einnig við græn­káli í vöru­línu okk­ar sem er auðvitað frá­bært í sal­atið og aðra rétti, það er svo guðdóm­lega fal­legt á lit­inn og tala nú ekki um hvað það er stökkt og bragð gott,“ seg­ir Birna.

Sprett­ur eru súper­fæða

Eitt af því sem hef­ur notið mik­ill vin­sælda á veit­inga­stöðum eru svo­kallaðar sprett­ur en þær eru ein­mitt ræktaðar hjá VAXA.

„Sprett­ur (e. Microgreens) eru svo vör­ur sem við höf­um hingað til ein­göngu verið að selja til veit­ingastaða en höf­um fengið svo mikið af fyr­ir­spurn­um um að selja sprett­urn­ar í versl­un­um,“ bæt­ir Birna við.

Fyr­ir þá sem ekki vita þá eru sprett­ur ung­ar plönt­ur sem eru upp­skorn­ar stuttu eft­ir að fyrstu blöðin hafa mynd­ast. Sprett­ur geta inni­haldið allt að 40 sinn­um meira af víta­mín­um, steinefn­um og andoxun­ar­efn­um en fullþroskað græn­meti.

„Til dæm­is eins og bauna­spír­urn­ar sem við erum að rækta gefa sætt bauna­bragð og inni­halda B1, B2. B3 og C víta­mín, kalsíum, kalí­um og magnesí­um og svo mín­ar allra upp­á­halds rauðra­dís­urn­ar og Sól­blóma sem eru í VAXA sprett­ur blandaða box­inu okk­ar inni­halda A, C, E og K víta­mín, járn, kalsíum, magnesí­um og sink.

Þær passa með öll­um mat, hvort sem það er sal­at, kjöt, fisk­ur, egg, pítsa eða hrein­lega beint í þeyt­ing­inn. Sprett­ur eru unaðslega bragðgóðar og tala nú ekki um hvað þær gera all­an mat marg­falt fal­legri og bragðbæta. Þær breyta hvers­dags­leg­um heim­il­is­mat í máltíð á fín­ustu veit­inga­stöðum,“ seg­ir Birna stolt en hún er búin að bíða lengi eft­ir því að gera komið þeim í mat­vöru­versl­an­ir. 

Hvað skipt­ir sköp­un þegar nýj­ung­ar eins og þess­ar vör­ur eru fram­leidd­ar og koma á markað?

„Við höf­um til dæm­is bætt við vöru­úr­valið okk­ar minni skammta­stærðum af sal­at­blöndu þegar við sáum að um 90% af Íslend­ing­um upp­lifa skammta­stærðir of stór­ar og henda sal­ati. Þar vor­um við þá bæði að svara kalli neyt­enda og sporna við mat­ar­sóun.

Við finn­um fyr­ir því að fólk vill frek­ar kaupa kryd­d­jurtir sem eru ræktaðar á Íslandi en að kaupa kryd­d­jurtir sem hafa skellt sér í heims­reisu alla leið frá Afr­íku til að enda á mat­ar­borði Íslend­inga. Ná­lægð rækt­un­ar VAXA spar­ar um 97% af kol­efn­is­los­un vegna flutn­ings frá fjar­læg­um mörkuðum en það hef­ur einnig gríðarleg áhrif á fersk­leika og end­ing­ar­tíma vör­unn­ar.

Við sjá­um mikla aukn­ingu á því hvernig fólk lít­ur á mat og hvernig það er meðvitað að  æra sig fyr­ir betri and­lega og lík­am­lega heilsu. Þar eru sprett­ur al­gjör súper­fæða hlaðnar mis­mun­andi nær­ing­ar­efn­um, andoxun­ar­efn­um, trefj­um og próteini,“ seg­ir Birna enn­frem­ur.

Kryd­d­jurtirn­ar vin­sæl­ar en sprett­urn­ar munu koma sterk­ar inn

Hvað er vin­sæl­ast hjá ykk­ur?

„Ég myndi þá segja að sal­atið okk­ar, það slær alltaf í gegn en ann­ars eru flest­ir sam­mála um að kryd­d­jurtirn­ar okk­ar njóti mik­illa vin­sælda enda eru þeir í sér­flokki bæði þegar það kem­ur að bragði og end­ing­ar­tíma.“ 

Birna tel­ur þó að sprett­urn­ar eigi mikið inni og muni slá í gegn áður en langt um líður.

„Ég er þó full­viss um að VAXA sprett­urn­ar verða þær allra vin­sæl­ustu þegar fram líða stund­ir. Það er nefni­lega hægt að gera svo ótrú­lega mikið með þær, og ekki er það verra hversu stút­full­ar þær eru af víta­mín­um og steinefn­um. Við sjá­um reynd­ar aukn­ingu á öll­um okk­ar vör­um þar sem fólk er farið að láta sér upp­runa­land, hvort vör­urn­ar séu meðhöndlaðar með varn­ar­efn­um og sjálf­bær­ar rækt­un­ar aðferðir varða og þá er þetta góður kost­ur.“

Er hægt að nálg­ast ein­hverj­ar upp­skrift­ir hjá ykk­ur sem inni­halda til að mynda sprett­ur?

„Við erum dug­leg að deila allskon­ar upp­skrift­um á sam­fé­lags­miðlum VAXA, sér­stak­lega á In­sta­gram-síðunni okk­ar hér, svo mæl­um við með fylgj­ast með hér á Mat­ar­vef mbl.is, við sjá­um oft upp­skrift­ir frá fólki sem inni­halda sprett­urn­ar. Við hvetj­um þó fólk til þess að prófa sig áfram með sprett­ur þær gera all­an mat betri og svo miklu fal­legri,“ seg­ir Birna að lok­um og deil­ir hér með les­end­um einni upp­skrift af ofn­steikt­um gul­rót­um með bauna­sprett­um.

Ferskar baunasprettur er nú hægt að kaupa í Krónunni.
Fersk­ar bauna­sprett­ur er nú hægt að kaupa í Krón­unni. Ljós­mynd/​VAXA

Svífur á bleiku skýi með spretturnar

Vista Prenta

Ofn­steikt­ar gul­ræt­ur með bauna­sprett­um

Fyr­ir 4-6

  • 500 g/1 poki gul­ræt­ur
  • 2 msk. hun­ang, akas­íu- eða blóma­hun­ang
  • 1 stk. pressaður hvít­lauks­geiri
  • 1 tsk. þurrkað tim­i­an
  • 4 msk. edik, hvít­vín­se­dik, bal­sa­mik edik eða rauðvín­se­dik
  • 3 msk. ólífu­olía
  • 1 msk. flögu­salt
  • 15 g bauna­sprett­ur frá VAXA

Aðferð:

  1. For­hitið ofn­inn í 220°C hita.
  2. Setjið gul­ræt­urn­ar heil­ar í eld­fast mót og veltið þeim vel og vand­lega upp úr hun­angi, hvít­lauk, tim­i­an, ed­iki, ólífu­olíu og salti.
  3. Setjið gul­ræt­urn­ar í ofn­inn og bakið þær í um það bil 20-25 mín­út­ur.
  4. Blandið bauna­spír­un­um með gul­rót­un­um og berið fal­lega fram.
  5. Hægt er að hafa gul­ræt­urn­ar heil­ar eða skera tvisvar til þris­var þvert í geng­um þær.
Baunaspretturnar passa afar vel með ofnsteiktum gulrótum.
Bauna­sprett­urn­ar passa afar vel með ofn­steikt­um gul­rót­um. Sam­sett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert