Taco-veislan sem bjargar þriðjudeginum

Ekta „Taco Tuesday“ sælkeramáltíð til að bjóða upp á.
Ekta „Taco Tuesday“ sælkeramáltíð til að bjóða upp á. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hér er á ferðinni til­breyt­ing fyr­ir „Taco Tu­es­day“ sem kem­ur í smiðju Berg­lind­ar Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar. Ef ykk­ur lang­ar að slá í gegn á þriðju­degi og bjóða í mat þá er þetta rétt­ur­inn.

Sjáið hvernig Berg­lind vinn­ur verkið.

Taco-veislan sem bjargar þriðjudeginum

Vista Prenta

Fyllt­ar sæl­kera tortilla kök­ur

Fyr­ir 4

  • 500 g nauta­hakk
  • ½ poki Taco krydd
  • 8 stór­ar tortilla kök­ur
  • 8 litl­ar tortilla kök­ur
  • 8 msk. sýrður rjómi
  • 16 msk. ostasósa
  • Ma­arud tortilla chili cheese flög­ur
  • Rósa­kál/​Ice­berg, saxað
  • 4 tóm­at­ar, saxaðir
  • Rif­inn ost­ur
  • Lárperumauk (sjá upp­skrift að neðan)
  • Olía til steik­ing­ar

Aðferð:

  1. Steikið hakkið og kryddið, geymið.
  2. Smyrjið miðjuna á stóru tortilla kök­unni með um 1 msk. af sýrðum rjóma.
  3. Setjið næst hakk yfir og þá um 2 msk. af ostasósu.
  4. Næst má raða tortilla flög­um yfir ostasós­una og setja kál, tóm­ata og rif­inn ost ofan á.
  5. Að lok­um má setja litla tortilla köku ofan á allt og bretta hina stóru upp á hana.
  6. Steikið við meðal­hita á pönnu þar til kak­an byrj­ar að gyll­ast og verður stökk.
  7. Skerið til helm­inga og berið fram með guaca­mole og Ma­arud tortilla flög­um.

Lárperumauk

  • 3 litl­ar lárper­ur 
  • 100 g piccolo tóm­at­ar
  • ½ rauðlauk­ur
  • 1 msk. límónusafi
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Saxið lauk­inn og tóm­at­ana niður.
  2. Stappið lárper­urn­ar og kreistið límónusaf­ann yfir.
  3. Blandið öllu sam­an og kryddið eft­ir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert