Ljúffengur gratíneraður þorskur sem er ekkert vesen að elda

Gratíneraður þorskur með sinnepsrjóma hljómar ágætlega í kvöldverð.
Gratíneraður þorskur með sinnepsrjóma hljómar ágætlega í kvöldverð. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Þetta er ljúf­feng­ur fisk­rétt­ur, gratín­eraður þorsk­ur með sinn­epsrjóma, sem ein­falt er að elda og ekk­ert vesen. Allt hrá­efnið í einu fati og út­kom­an verðu góm­sæt, hvers­dags og get­ur líka verið spari. Helena Gunn­ars­dótt­ir mat­gæðing­ur hjá Eld­húsperl­um á heiður­inn að þess­ari upp­skrift sem birt­ist á upp­skrifta­vefn­um Gott í mat­inn.

Ljúffengur gratíneraður þorskur sem er ekkert vesen að elda

Vista Prenta

Gratín­eraður þorsk­ur í sinn­epsrjóma

Fyr­ir 4

  • 750 g þorsk­ur eða ann­ar hvít­ur fisk­ur
  • 1 stk. brok­kolí- eða blóm­káls­haus
  • 2 dós­ir sýrður rjómi 18%
  • 2 msk. dijon sinn­ep
  • 1 msk. gróf­korna sinn­ep
  • 2 msk. saxaður kapers
  • ½ stk. blaðlauk­ur, smátt saxaður
  • rif­inn pítsa-, gratín- eða mozzar­ella ost­ur
  • salt og pip­ar eft­ir smekk
  • smjör eft­ir smekk
  • fersk stein­selja eft­ir smekk
  • kirsu­berjatóm­at­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 220°C með blæstri.
  2. Smyrjið eld­fast mót með smá smjöri.
  3. Skerið blóm­kál eða brok­kolí smátt og setjið í botn­inn á eld­fasta mót­inu.
  4. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  5. Skerið fisk­inn í pass­lega bita, þerrið, saltið og piprið og leggið ofan á græn­metið.
  6. Hrærið sam­an sýrðum rjóma, sinn­epi, kapers og blaðlauk.
  7. Smakkið til með salti og pip­ar.
  8. Smyrjið ofan á fisk­inn.
  9. Stráið dá­litl­um rifn­um osti yfir og bakið í 20 mín­út­ur inni í ofni.
  10. Berið fram með hrís­grjón­um, sal­ati og/​eða góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert