„Þetta verður veisla“

Gabríel Kristinn Bjarnason matreiðslumaður og landsliðskokkur er að gefa út …
Gabríel Kristinn Bjarnason matreiðslumaður og landsliðskokkur er að gefa út sína fyrstu matreiðslubók sem ber nafn með rentu Þetta verður veisla. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir

Gabrí­el Krist­inn Bjarna­son, mat­reiðslumaður og landsliðskokk­ur, hef­ur gefið út sína fyrstu mat­reiðslu­bók. Bók­in ber nafn með rentu Þetta verður veisla. Hann er þekkt­ur fyr­ir hæfi­leika sína í mat­ar­gerð og kunn­áttu fyr­ir að galdra fram ­rétti sem fanga bragðlauk­ana.

Hann hef­ur frá́ unga aldri haft óbilandi ástríðu fyr­ir mat­reiðslu. Hann hef­ur starfað á virt­um veit­inga­hús­um hér á́ landi, keppt og þjálfað fyr­ir keppn­ismat­reiðslu um all­an heim og hef­ur í gegn­um tíðina hlotið marg­ar viður­kenn­ing­ar, meðal ann­ars silf­ur­verðlaun með ís­lenska kokka­landsliðinu á Ólymp­íu­leik­un­um í mat­reiðslu sem fram fóru í fe­brú­ar síðastliðinn.

Leiðar­vís­ir til að töfra fram veislu á ný­stár­leg­an hátt

Þetta er mat­reiðslu­bók fyr­ir þá́ sem finnst gam­an að bjóða vin­um og fjöl­skyldu heim í mat en vilja ekki hafa allt of mikið fyr­ir því.

Bók­ar­káp­an er í anda Gabríels og myndirnar af réttunum fang­a …
Bók­ar­káp­an er í anda Gabrí­els og mynd­irn­ar af rétt­un­um fang­a augað og vek­ja áhuga. Ljós­mynd/​Há­kon

„Hér er kom­inn leiðar­vís­ir að því hvernig má gera flott­an mat úr hrá­efni sem meðal ann­ars leyn­ist inni í heima og töfra fram veislu á ný­stár­leg­an hátt. Í́ bók­inni má finna frum­leg­ar upp­skrift­ir að smjöri og ídýf­um, fingramat og veislupinn­um, aðal­rétt­um og eft­ir­rétt­um,“ seg­ir Gabrí­el.

„Að fá bók­ina loks­ins í hend­urn­ar, sem ég er bú­inn að vinna hart að sein­ustu tvö ár að setja sam­an, er geggjuð til­finn­ing. Þetta er búið að vera draum­ur hjá mér síðan ég byrjaði í mat­reiðslu en ég bjóst kannski ekki við að kæmi að þessu strax miðað við ung­an ald­ur,“ seg­ir Gabrí­el.

„Það er ótrú­lega gam­an að finna hve spennt fólkið í kring­um mig er fyr­ir því að fara að kaupa bók­ina. Von­andi munu bóka­eig­end­ur töfra fram fram­andi veisl­ur fyr­ir skemmti­legt og hungrað fólk þegar bók­in er kom­in í höfn,“ seg­ir Gabrí­el sposk­ur á svip.

Gabríel töfraði meðal annars fram þetta dýrðlega smjörbretti á nýstárlegan …
Gabrí­el töfraði meðal ann­ars fram þetta dýrðlega smjör­bretti á ný­stár­leg­an hátt. Ljós­mynd/​Há­kon

Ekki eins flókið og það lít­ur út fyr­ir að vera

Þakk­læti er Gabrí­el of­ar­lega í huga þegar hann hugs­ar um tím­ann með öll­um þeim sem komu að verk­efn­inu á einn eða ann­an hátt.

„Ég vil líka nota tæki­færið og þakka öll­um sem komu að bók­inni og vona að mataráhuga­fólk heima fyr­ir kaupi bók­ina og sjá að það er ekki eins flókið og það lít­ur oft út fyr­ir að vera að henda í flotta veislu.“

Gabrí­el er spennt­ur fyr­ir kom­andi tím­um og hlakk­ar mikið til að fylgja bók­inni sinni eft­ir.

„Næst hjá mér er að fagna komu bók­ar­inn­ar, kynna fólki fyr­ir inni­hald­inu á sam­fé­lags­miðlum með nokkr­um mynd­bönd­um og mögu­lega gjafa­leik, hver veit. Þetta verður veisla,“ seg­ir Gabrí­el að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert