Í tilefni þess að Bleiki dagurinn er fram undan miðvikudaginn 23. október næstkomandi er lag að birta nokkrar uppskriftir þar sem bleiki liturinn er í forgrunni. En á Bleika deginum hvetur Krabbameinsfélagið landsmenn til að vera í bleika gírnum, bera bleiku slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma, bjóða upp á bleikar kræsingar og halda bleik kaffiboð svo fátt eitt sé nefnt.
Þetta er hvatning til allra svo að allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni fyrir stuðningi landsmanna og samstöðu.
Fleiri girnilegar uppskriftir eiga eftir að birtast á næstu dögum á Matarvefnum þar sem bleiki liturinn verður í forgrunni.
Hér fyrir neðan eru fjórar sem voru vinsælar á síðasta ári, þ.e. bleik vanillukaka, bleikur draumur í glasi, bleikar marensskálar og bleikir kleinuhringir sem kalla á þig.