Er þetta heitasta tómatsúpan í dag?

Ómótstæðilega girnileg tómatsúpa borin fram með grillaðri ostasamloku að betri …
Ómótstæðilega girnileg tómatsúpa borin fram með grillaðri ostasamloku að betri gerðinni. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Girnilegar heitar súpur eru vinsælar á þessum árstíma og svo eru rjómaostar líka í miklu uppáhaldi hjá mörgum, hvort sem er í matargerð, á beyglur og brauð eða á ostabakkann.

Hér er á ferðinni rjómalöguð tómatsúpa sem gæti orðið heitasta tómatsúpan í dag og kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur hjá Eldhúsperlum. Upplagt er að bera súpuna fram með grilluðu ostabrauði og útbúa úr þessu hinn fullkomna vetrarrétt. Í súpunni er ný tegund af rjómaosti, með tómötum og basilíku, sem á án efa eftir að gleðja ostaaðdáendur. Rétturinn er frábær hversdagsmatur en ekki síðri fyrir matarboð og veislur því hér er á ferðinni huggulegheitamatur sem yljar á köldum dögum.

Í tilefni að Ostóber kom þessi nýi ostur sem er bragðbættur rjómaostur með tómötum og basilíku.

Rjómalöguð tómatsúpa og grillað ostabrauð

Fyrir 4

  • 5 stórir vel þroskaðir tómatar (um 750 g)
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 1 stór rauðlaukur
  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 msk. balsamikedik
  • 2 msk. tómatpaste
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 500 ml heitt vatn
  • 1 msk. grænmetiskraftur eða 1 grænmetisteningur
  • 1 dós rjómaostur með tómötum og basilíku frá MS
  • 150 ml rjómi
  • fersk basilíka eftir smekk
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  • Hitið ofn í 200°C.
  • Setjið gróft skorna tómatana, lauk og heil hvítlauksrif í fat, hellið ólífuolíu og ediki yfir, saltið og piprið og bakið í 30-40 mínútur.
  • Færið bakað grænmetið yfir í stóran pott, bætið út í einni dós af tómötum, tómatpaste, vatni, grænmetiskrafti og hitið aðeins.
  • Maukið með töfrasprota ef þið viljið flauelsmjúka áferð á súpuna, en sleppið annars.
  • Bætið út í rjómaostinum ásamt rjóma og ferskri basilíku eftir smekk.
  • Smakkið til með salti og pipar.
  • Ef ykkur finnst súpan of þykk má þynna með meira vatni.

Grillaðar ostasamlokur
Fyrir 4

  • 8 sneiðar hvítt súrdeigsbrauð
  • mjúkt smjör
  • bragðmikill ostur að eigin vali, t.d. Óðals Tindur eða Búri

Aðferð:

  1. Gerið samlokurnar.
  2. Leggið tvær brauðsneiðar saman með nóg af osti á milli.
  3. Smyrjið samlokurnar að utan með smjöri og steikið á báðum hliðum á meðal heitri pönnu þar til osturinn hefur bráðnað.
  4. Berið fram með súpunni.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka