Ómótstæðilega freistandi bleik skyrkaka

Anna Marín Bentsdóttir ástríðubakari ætlar að bjóða upp á bleika …
Anna Marín Bentsdóttir ástríðubakari ætlar að bjóða upp á bleika skyrköku með hindberjakeim í tilefni Bleika dagsins. Ljósmynd/Bent Marinósson

Bleika þemað heldur áfram á Matarvefnum og næst er það Anna Marín Bentsdóttir ástríðubakari hjá lífsstíl- og eldhúsversluninni Kokku sem deilir með lesendum girnilegri uppskrift að bleikri skyrköku. Kakan er með hindberjakeim og kexbotninn er hreint sælgæti.

Ómótstæðilega freistandi skyrkaka.
Ómótstæðilega freistandi skyrkaka. Ljósmynd/Bent Marinósson

Anna Marín ætl­ar að halda upp á Bleika dag­inn sem framundan er á miðviku­dag­inn 23. októ­ber næst­kom­andi og bjóða upp á þessa dýrðlegu bleiku skyrköku sem á án ef eftir gleðja þá sem fá að njóta. Hún ætlar að dekka borð þar sem bleiki liturinn fær að njóta sín og vera sjálf svolítið bleik í tilefni dagsins.

Skyrkakan er einstaklega falleg og bragðast syndsamlega vel.

Fegurð í bleiku.
Fegurð í bleiku. Ljósmynd/Bent Marinósson

Bleik skyrkaka

Kex botn

  • 200 g Lukex
  • 80 g bráðið smjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja kexið í matvinnsluvél og myljið þar til að það eru engir stórir klumpar eftir af kexi eftir.
  2. Bræðið smjörið og blandið því við kexið.
  3. Setjið bökunarpappír í botninn á 24 cm smelluform og hellið kex blöndunni í botninn og þjappið henni vel.
  4. Kælið síðan á meðan skyrfyllingin er gerð.

Hindberjaskyrfylling

  • 300 g frosin hindber
  • 80 g sykur
  • börkur af 1 sítrónu
  • safi úr 1 sítrónu
  • 5 matarlímsplötur
  • 500 g vanillu skyr
  • 300 g þeyttur rjómi
  • Hindberja sulta

Aðferð:

  1. Leggið matarlíms plöturnar í kalt vatn og setjið til hliðar.
  2. Setjið hindber, sykur, sítrónu börk og safa. í miðlungs pott.
  3. Hrærið saman yfir vægum hita.
  4. Stappið berin og svo leyfið að malla í nokkrar mínútur.
  5. Bætið síðan matarlímsblöðunum út í og hrærið vel.
  6. Hellið síðan blöndunni í gegnum sigti og leyfið að kólna.
  7. Setjið skyrið og flórsykur í skál og hrærið með písk.
  8. Hrærið hindberja blöndunni við skyrið.
  9. Stífþeytið síðan rjómann og blandið varlega við skyrblönduna með sleikju.
  10. Takið kex botninn úr kæli, hellið skyrblöndunni yfir og sléttið úr toppnum.
  11. Setjið aftur í kæli og kælið í minnst 6 klukkustundir eða helst yfir nótt.

Hindberjasósa

  • 200 g frosin hindber
  • 80 g sykur
  • 220 g fersk hindber

Aðferð:

  1. Setjið frosnu hindberin og sykurinn saman í pott og hrærið yfir miðlungs hita þar til blandan hefur þykkt smá.
  2. Hellið síðan í gegnum sigti ofan í skál og bætið fersku hindberjunum út í.
  3. Hrærið allt varlega saman og leyfið að standa við stofuhita í 30-60 mínútur.

Samsetning:

  1. Takið kökuna úr kæli og færið á disk, skreytið með hindberja sósunni.
  2. Skerið síðan í og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert